Pólskir foreldrar hafa kært barnaverndarnefnd Nadine Guðrún Yaghi skrifar 26. janúar 2019 19:15
Pólskir foreldrar hafa lagt fram kæru á hendur félagsmálanefnd Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu fyrir að halda börnum þeirra frá þeim þrátt fyrir dóm Landsréttar um að þau fari með forsjána. Pólska sendiráðið segir málið alvarlegt og að verið sé brjóta á pólskum borgurum. Að sögn lögmanns foreldranna, Stefáns Karls Kristjánssonar, hafði barnaverndarnefndin fyrst afskipti af foreldrunum fyrir rúmum tveimur árum eftir tilkynningar frá leikskóla miðjudótturinn um þungar bleyjur. Þá hafi elsta dóttirin, þá 15 ára, borið móður sína sökum um að hafa beitt sig ofbeldi. Dóttirin hafi svo dregið þær ásakanir til baka. Tvö yngri börnin voru tekin af foreldrunum fyrir einu og hálfu ári. Yngsta barnið á fæðingadeildinni. Hann segir að samskiptavandi á heimilinu hafi einnig verið meðal skýringa barnaverndar í málinu.Neita að afhenda börnin þrátt fyrir dómsniðurstöðu Frá upphafi hafi aðgerðir barnaverndar verið allt of harkalegar. Foreldrarnir séu ekki í neinu rugli og séu gott fólk. Faðirinn sé seinfær en geti vel alið upp börn fái hann réttan stuðning. Móðirin sé með eðlilega greind en að mikið álag hafi verið á henni á þessum tíma. Nú hafi héraðsdómur og Landsréttur staðfest þetta en í desember var kveðinn upp dómur þar sem ekki er fallist á kröfu barnaverndar um að svipta foreldrana forsjá barnanna og barnavernd jafnframt gert að vinna að því með heilum hug að aðlaga börnin að því að fara aftur til foreldra sinna. Barnavernd neitar enn að afhenda börnin og var kæra lögð fram vegna málsins í gær. „Fyrir það að halda börnum frá foreldrum sem er refsivert og það er verið að kæra fyrir misbeitingu á valdi þegar opinberir starfsmenn kjósa einfaldlega að líta fram hjá niðurstöðum dómstóla og telja sig ekki þurfa að fylgja þeim,“ segir Stefán Karl. Barnaverndarnefnd hafi nú óskað eftir leyfi til að áfrýja málinu til Hæstaréttar en það sé ótækt að ætla enn að halda börnunum, eftir eitt og hálft ár, þrátt fyrir skýra niðurstöðu Landsréttar. „Ég sé ekkert sem mælir gegn því að þau fái börnin sín til baka. Þau þurfa aðstoð vissulega og að byggja upp tengsl. Þau eru öll af vilja gerð til að standa sig vel,“ segir Stefán Karl. Barnavernd telur sig vinna samkvæmt niðurstöðum dómsins Málið hafi tekið gríðarlega á foreldrana. „Fá ekki að sjá þau og fá ekki að nálgast þau og vita ekki einu sinni hvar þau eru. Þeim líður hrikalega. Þau hafa ítrekað óskað eftir samstarfi og samvinnu en það er engin samvinna þegar hinn aðilinn neitar að vinna með fólki,“ segir Stefán Karl. Í svari frá Árnýu Hrund Svavarsdóttur, formanni barnaverndarnefndarinnar, segir að barnavernd geti ekki tjáð sig um einstaka mál. Hins vegar séu allar frásagnir um vinnslu barnaverndarmála einhliða og gefa því aldrei fulla mynd af málavöxtum. Barnaverndarnefnd telji sig vera að vinna samkvæmt niðurstöðum dómsins.Vilja að réttur foreldranna sé virtur Þessu er pólska sendiráðið á Íslandi, sem hefur látið sig málið varða, ekki sammála. „Við erum hingað komin til að tryggja að réttur pólskra ríkisborgara sé virtur. Fjölskyldan hefur fylgt lögum í einu og öllu og nú viljum við að niðurstöðu dómstólsins sé fylgt eftir.“ segir Jakub Pilch, ræðismaður Póllands á Íslandi og bætir við að nú sé kominn meira en mánuður síðan dómurinn féll. Jacub segir augljóst að það sé einhver ástæða fyrir því að börnin hafi upphaflega verið tekin af foreldrunum. „Ásakanir á hendur foreldrunum réttlæta ekki þá meðferð sem þeir hafa mátt þola undanfarið hálft annað ár,“ segir Jacub. Málið hafi vakið mikla reiði í Póllandi og hafa fjölmiðlar þar fjallað mikið um málið. Þá segir hann alvarlegt að horft hafi verið fram hjá pólskum rótum barnanna. „Tengsl fjölskyldunnar við börnin hafa verið of lítil til að tryggja framför í að tala móðurmál þeirra, pólsku,“ segir Jacub.
Félagsmál Pólland Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Sjá meira