Átta marka síðari hálfleikur er KR hafði betur gegn Val Anton Ingi Leifsson skrifar 31. janúar 2019 22:42 Tobias var á skotskónum í kvöld. vísir/vilhelm
KR er komið í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins eftir stórkostlegan undanúrslitaleik gegn grönnum sínum í Val í Egilshöllinni í kvöld. Lokatölur urðu 5-3 sigur KR en Valur leiddi 3-1 er rúmlega klukkutími var liðinn af leiknum. Endurkoma KR var af dýrari gerðinni. Staðan var markalaus í hálfleik en síðari hálfleikur var magnaður. Garðar Gunnlaugsson kom Val yfir á 55. mínútu en einungis tveimmur mínútum síðar jafnaði hinn ungi Finnur Tómas Pálmason fyrir KR. Eftir klukkustund var Garðar aftur á ferðinni er hann kom Val í 2-1 og fimm mínútum síðar skoraði landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson og kom ríkjandi Íslandsmeisturunum í 3-1. Flestir héldu þá að Valur myndi sigla sigrinum í hús. Vesturbæjarliðið var þó ekki af baki dottið. Aron Bjarki Jósepsson minnkaði muninn með aukaspyrnumarki á 72. mínútu og tveimur mínútum síðar jafnaði Pablo Punyed metinn með frábæru skoti fyrir utan teig. Sigurmarkið var svo skrautlegt. Arnar Sveinn Geirsson og Sveinn Sigurður Jóhannesson voru í alls konar basli í öftustu línu Vals sem endaði með því að boltinn barst til Tobias Thomsen, sem lék með Val á síðustu leiktíð, en Daninn átti ekki í erfiðleikum að koma boltanum í markið. Er níu mínútur voru til leiksloka kom áttunda mark síðari hálfleiksins en þar var á ferðinni vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson sem gerði út um leikinn fyrir KR. Í úrslitaleiknum mætast KR og Fylkir en leikið verður í Egilshöllinni á mánudagskvöldið.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira