Harmleikur þegar sjúklingur á Vogi kveikti í sér Sigurður Mikael Jónsson skrifar 14. febrúar 2019 06:30 Sjúkrahúsið Vogur er við Stórhöfða í Reykjavík. VÍSIR/VILHELM
Sjúklingur á sjúkrahúsinu Vogi var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild um helgina með brunasár en grunur leikur á að hann hafi kveikt í sér. Litlar upplýsingar fást um líðan mannsins en forstjórinn á Vogi kveðst ekki hafa þær upplýsingar. „Þetta er harmleikur fyrir einstaklinginn,“ segir Valgerður Á. Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs. Hún vildi lítið tjá sig um atvikið og taldi það ekki fréttnæmt. Það hafi verið eins og hvert annað slys. „Þetta er bara atvik sem verður. Get ekki tjáð mig um það frekar en önnur mál,“ segir Valgerður. Aðspurð um líðan mannsins vísar hún á sjúkrahúsið, hún hafi ekki þær upplýsingar. Og ef grunur sé um eitthvað til að rannsaka þá sé það lögreglunnar. Landspítali hefur þá reglu að svara ekki spurningum um einstaka sjúklinga. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, kvaðst ekki kannast við að málið hefði komið inn á borð þar. Sjálfsskaði er sjaldgæfur á Vogi. Fram kom í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á síðasta þingi að tveir einstaklingar hafi fyrirfarið sér á þeim 40 árum sem sjúkrahúsið hefur verið starfrækt.
Birtist í Fréttablaðinu Reykjavík Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Innlent Rússar segja til hvers annars líkt og á tímum Stalíns Erlent Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Innlent Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Erlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Fleiri fréttir Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Sjá meira