
Eitrað umhverfi
Rétt er að beina sjónum að framferði nokkurra borgarfulltrúa gagnvart starfsmönnum borgarinnar. Það getur ekki talist eðlilegt að um sjötíu starfsmenn hafi séð ástæðu til að kvarta undan framkomu borgarfulltrúa og að tveir einstaklingar hafi látið af störfum vegna þess að þeir þoldu ekki þessa framkomu. Þarna mun einungis um örfáa borgarfulltrúa að ræða en um leið er ljóst að þeir hafa hvergi dregið af sér í dónaskap og fautalegri framkomu fyrst tugir starfsmanna sjá ástæðu til að kvarta undan þeim.
Starfsfólk borgarinnar á að geta unnið störf sín í friði en á ekki að þurfa að búa við það að geðvondur borgarfulltrúi ausi úr skálum reiði sinnar yfir það. Enginn á að þurfa að vinna í svo eitruðu umhverfi.
Það eru því einkennileg viðbrögð að skjóta sendiboðann, það er að segja Stefán Eiríksson borgarritara sem á Facebook gagnrýndi nokkra borgarfulltrúa, án þess að nafngreina þá, og sagði þá ítrekað hafa vænt starfsfólk Reykjavíkurborgar um óheiðarleika og vegið að starfsheiðri þeirra. Ljóst er að Stefán átti þarna við nokkra borgarfulltrúa minnihlutans. Einhverjir þeirra hafa einmitt svarað Stefáni fullum hálsi. Svo virðist sem þeir taki orð hans til sín. Þeim væri nær að líta í eigin barm og spyrja sig hvort þeir eigi einhverja sök í málinu. Það er allavega skrýtið að beina spjótum að Stefáni fyrir að vekja athygli á vanlíðan starfsmanna borgarinnar. Vanlíðan sem stafar af hegðun nokkurra borgarfulltrúa.
Sú lítt friðelskandi manneskja, Vigdís Hauksdóttir, sagði að þessi Facebook-færsla hlyti að vera síðasta skítverkið sem Stefán ynni fyrir Dag B. Eggertsson, hann yrði að hverfa úr embætti eftir þessi orð sín. Umhyggja fyrir líðan starfsmanna borgarinnar virðist ekki ofarlega á blaði hjá þessum borgarfulltrúa minnihlutans.
Ljóst er að ýmsum í minnihluta borgarstjórnar er mjög í mun að bregða fæti fyrir meirihlutann í borginni með hvaða ráðum sem er. Það er svo sem ekki hægt að álasa borgarfulltrúum minnihlutans fyrir að þrá að komast til áhrifa í borginni en þeir ættu að láta af ofstækisfullum málflutningi og reyna að stilla skap sitt í samskiptum við starfsmenn borgarinnar sem eiga að fá að vinna störf sín án þess að gólandi borgarfulltrúar séu að angra þá.
Rétt er svo að halda því til haga að innan minnihlutans í borginni er sómafólk sem ekki grípur til gífuryrða við hvert tækifæri heldur stundar málefnalega gagnrýni og myndi aldrei gera sig sekt um að valda starfsmönnum borgarinnar sársauka með hegðan sinni. Hinir fáu sem láta pólitískt ofstæki stjórna sér valda miklum skaða, skapa sársauka og koma óorði á stjórnmálin.
Skoðun

Þegar óttinn er ekki sannur
Sigurður Árni Reynisson skrifar

Fimm staðreyndir fyrir Gunnþór Ingvason
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir
Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar

Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina
Guðmundur Björnsson skrifar

Á flandri í klandri
Jens Garðar Helgason skrifar

Átak til að stytta biðlista barna eftir sérfræðiaðstoð
Helga Þórðardóttir skrifar

Hverjir borga leikskólann í Kópavogi?
Örn Arnarson skrifar

Tölvupóstar fjórðu iðnbyltingarinnar
Sigurjón Njarðarson skrifar

„Skömmin þín“
Jokka G. Birnudóttir skrifar

Tökum samtalið
Gunnþór Ingvason skrifar

„Eruð þið sammála lausagöngu katta?“
Sighvatur Björgvinsson skrifar

Réttlæti fyrir þjóðina, framfarir fyrir landsbyggðina
Guðmundur Ari Sigurjónson skrifar

Hvernig meðhöndlum við vanda sem ekki má tala um? Skaðaminnkandi nálgun í fangelsum
Margrét Dís Yeoman skrifar

Stuðningur við nýsköpun í menntun: Leið að betra mati
Bogi Ragnarsson skrifar

Þegar illfygli leiðir stórmennskubrjálæðing
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Afruglari
Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Þjóðkirkja á réttri leið
Þórður Guðmundsson skrifar

Staðreyndir um einfaldara regluverk
Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar

Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina
Gunnar Guðni Tómasson skrifar

Falin tækifæri til náms
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Gervigreind í námi: 5 lykilskref fyrir öryggi nemenda
Björgmundur Guðmundsson skrifar

Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz
Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar

„Jákvæð viðbrögð“ um veiðigjaldið?
Heimir Örn Árnason skrifar

Skattgreiðendur látnir borga brúsann
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið
Gylfi Páll Hersir skrifar

Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Gróf misbeiting illa fengins valds
Örn Sigurðsson skrifar

Að sækja gullið (okkar) grein 2
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir
Davíð Aron Routley skrifar