Snorri Victor Gylfason, yfirkokkur á Vox, gefur hér uppskriftir að nokkrum gómsætum fermingarréttum sem henta vel til að borða í veislum þar sem ekki er endilega sæti fyrir alla.
Það hentar ekki öllum að hafa sitjandi borðhald og því geta fylgt ýmsir kostir að hafa gesti standandi í fermingarveislum. Þannig spjallar fólk meira saman og hópurinn blandast betur. Veitingarnar geta líka sem best verið sniðnar að þessu fyrirkomulagi, eins og til dæmis þessir dýrindis réttir sem Snorri hjá Vox hefur sett saman og gefur hér uppskriftir að.

Arachini-bollur
400 g bygg
500 g kjúklingasoð
100 g rjómi
1 stk. skalottlaukur
1 stk. hvítlauksgeiri
1 dl hvítvin eða edik
200 g parmesan-ostur
200 g brauðraspur
100 g eggjarauður
100 g hveiti
Skolið byggið með köldu vatni. Hitið olíu í potti og steikið byggið þar til það er kominn smá litur á það. Bætið þá fínt söxuðum lauk og hvítlauk við og látið malla með. Hellið ediki eða víni yfir og sjóðið niður.
Bætið kjúklingasoði við í litlum skömmtum og látið sjóða niður á milli. Bætið við rjóma og sjóðið þar til byggottóið er orðið þykkt. Bætið fínrifnum parmesan saman við. Kælið byggið niður, gerið svo litlar kúlur og frystið.
Þegar á að bera fram kúlurnar er þeim fyrst velt upp úr hveiti, svo eggjarauðu og þar næst brauðraspi og endurtakið tvisvar sinnum. Djúpsteikið síðan á 180°C þar til þær eru gullinbrúnar.
Þessar bollur er gott að bera fram með pastasósu.

Mjúkt takó
250 g tígrisrækjur
100 g arabiata tómatsósa
100 g piparrót
100 g rauðlaukur sýrður í blöndu sem er 100 ml vatn, 100 g sykur og 100 ml edik
3 stk. vorlaukur 20 stk. lítil taco brauð
200 g hrásalat
Rífið piparrótina út í hrásalatið. Steikið rækjurnar og veltið upp úr tómatsósunni. Skerið rauðlaukinn í sneiðar og hellið ediksleginum yfir, látið bíða 15 mínútur. Skerið vorlaukinn smátt niður og raðið svo öllu saman í takóbrauðin.
Kjúklingaspjót
Marinering
1 þumall ferskur engifer
200 ml sojasósa
2 geirar hvítlaukur
200 ml sushi-edik
25 g shiracha eða sambal
250 g kjúklingalæri (u.þ.b. þrír bitar úr hverju læri)
50 g sesamfræ
200 ml hotspot teriaki-sósa
50 g ferskur kóríander
150 ml kryddmajónes
Marinerið kjúklinginn í um 30 mín. og eldið hann þá í ofni við 250°C í 15-20 mín. Skerið lærin í þrennt, setjið á spjót og hellið sesamfræjum, teriaki og kóríander yfir. Berið fram með kryddmajónesi.