Skoðun

Lítil skref

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Frumskógarlögmál og verðbólga ríkja á húsnæðismarkaði. Þetta kristallast meðal annars í þeirri staðreynd að húsnæðisverð hefur hækkað um 100 prósent á síðustu átta árum í stærsta sveitarfélagi landsins þar sem flestir búa. Þessi óviðunandi staða er síst til þess fallin að liðka fyrir þeirri grafalvarlegu stöðu sem upp er komin í deilum milli aðila vinnumarkaðarins.

Krafa verkalýðsfélaganna í yfirstandandi kjaraviðræðum um að bæta aðstæður fólks á húsnæðismarkaði er engin tilviljun. Forkólfar þessara verkalýðsfélaga hafa látið hafa eftir sér að launahækkanir undanfarinna ára hafi brunnið upp á húsnæðismarkaði. Forseti ASÍ lýsti yfir neyðarástandi í þeim efnum á dögunum.

Verð á húsnæði hefur óumdeilanlega hækkað umfram launaþróun undanfarin misseri. Erfitt er fyrir ungt fólk að stíga fyrstu skrefin inn á húsnæðismarkað. Leiguverð hefur hækkað upp úr öllu valdi. Íbúðalánasjóður metur sem svo að fleiri þúsundir íbúða vanti inn á markaðinn svo jafnvægi náist.

Það er til mikils að vinna að lending náist milli deiluaðila í kjaraviðræðum. Staðan á húsnæðismarkaði og sífellt harðnandi deilur á vinnumarkaði haldast óhjákvæmilega í hendur. Stjórnvöld þurfa að bregðast við sjálfsköpuðum vanda með einhverjum hætti. Þar er hlutur sveitarfélaganna mestur. Eitt af því sem stjórnmálamenn geta gert strax, nú á viðkvæmum tímum, er að lækka álögur og skatta á fasteignaviðskipti. Slík gjöld hafa áhrif til hækkunar fasteignaverðs, draga úr framboði og rýra hlut kaupenda, seljenda og leigjenda.

Tvö lítil skref voru stigin í þá átt í gær. Annars vegar mæltu þingmennirnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Þorsteinn Víglundsson fyrir afnámi svokallaðs stimpilgjalds, sem er 0,8 prósent gjald af verði fasteignar við kaup. Fyrir 35 milljóna króna íbúð greiðir kaupandinn því stimpilgjald upp á 300 þúsund krónur við kaupin. Þetta gjald vilja þingmennirnir fella niður.

Hins vegar lögðu Sjálfstæðismenn í borgarstjórn meðal annars til að svokölluðum byggingarréttargjöldum yrði stillt í hóf. 25 þúsund króna lækkun á því gjaldi á fermetra myndi lækka leigu á 90 fermetra íbúð um eitt hundrað þúsund krónur á ári.

Þótt afnám stimpilgjalds skipti ef til vill ekki sköpum fyrir fólk við fasteignakaup og hundrað þúsund krónur á ári sé ekki nægjanleg lækkun fyrir þá verst settu á leigumarkaði eru hugmyndirnar góðar og uppbyggilegar. Það var því miður að meirihlutinn í borgarstjórn skyldi fella tillöguna um byggingarréttargjöld.

Mörg lítil skref geta fleytt okkur ansi langt. Það væri óskandi að fleiri hugmyndir af svipuðum toga yrðu bornar á borð af hálfu stjórnmálamanna. Á meðan erum við að minnsta kosti að þokast í rétta átt.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×