Sautján árum síðar fékk hann að vinna með átrúnaðargoðinu Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2019 13:30 Joseph Cosmo vann lag fyrir gítarleikari Rammstein.
Richard Z. Kruspe gítarleikari metal hljómsveitar Rammstein gaf út á dögunum smáskífu með sóló verkefni sínu Emigrate. En þessi smáskífa inniheldur fimm útgáfur af lagi hans War og fékk Íslendingurinn Joseph Cosmo það verkefni að að endurgera lagið. Útgáfan fylgir fast á eftir tónlistarmyndbandi við rokk/metal smellinn sjálfan, sem kom út þann 15. mars á YouTube.„Ég fékk símtal einn dag fyrir rúmum mánuði síðan og voru það góðir vinir mínir Gunnar og Benni úr harðkjarna sveitinni Une misere. Þeir ljáðu mér þau tíðindi að upptökustjóra þeirra Sky vantaði færan aðila til að endurgera lag fyrir engan annan en Richard Z. Kruspe úr Rammstein. Strákarnir höfðu leyft Sky að heyra remix sem ég gerði fyrir Une misere árið 2017 og líkaði honum það mjög,“ segir Joseph Cosmo. „Þetta var bæði afar spennandi en í leiðinni mjög stressandi verkefni því tíminn var naumur sem mér var gefin þannig að ég gekk strax í málið. Nokkrum dögum síðar þá var remixið tilbúið fyrir Richard að heyra og gaf hann strax grænt ljós á útgáfu. Ég vissi auðvitað ekki hvernig hann tæki því en það hefur greinilega fallið í kramið hjá honum,“ segir Joseph hæstánægður. „Rammstein voru idolin mín þegar ég sá þá í höllinni þrettán ára og um svipað leiti var ég sjálfur að byrja að spila í þungarokksbandi, var með stjörnur í augunum þegar ég barði þessa menn augum og gaman nú sautján árum síðar að fá að vinna fyrir einn þeirra,“ segir Joseph að lokum. Seint gaf út nýverið nýja plötu í fullri lengd sem nefnist einfaldlega IV og hægt er að streyma hana á Spotify en Joseph er með limur í sveitinni. Hér að neðan má hlusta á remix hans af War.
Tónlist Mest lesið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira