Einar Rafn framlengir um þrjú ár í Krikanum Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. mars 2019 13:30 Einar Rafn og Sigurgeir Árni hressir og kátir í Krikanum í dag. mynd/tromman
Einar Rafn Eiðsson, hægri skytta bikarmeistara FH í Olís-deild karla í handbolta, er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við Hafnafjarðarliðið en þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Einar Rafn hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar undanfarin ár og er lykilmaður í FH-liðinu sem spilaði til úrslita í Olís-deildinni 2017 og 2018 og varð bikarmeistari á þessu ári. Hann var valinn besta hægri skyttan í Olís-deild karla á síðustu leiktíð en þá skoraði hann 6,5 mörk að meðaltali í leik og gaf fjórar stoðsendingar. Hann hefur verið mikið meiddur á þessari leiktíð en er að ná sér heilum rétt fyrir úrslitakeppnina. „Við FH-ingar erum gríðarlega ánægðir með að hafa náð samkomulagi við Einar Rafn um nýjan þriggja ára samning. Einar Rafn hefur verið einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins undanfarin ár og á stóran þátt í því góða gengi sem liðið hefur náð síðustu tímabil,“ segir Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH. „Við FH-ingar ætlum okkur að sjálfsögðu að halda áfram að berjast um alla titla á næstu árum og lítum á Einar Rafn sem lykilleikmann í þeirri vegferð.“ Einar Rafn og félagar í FH fá nýjan þjálfara í sumar þegar að Sigursteinn Arndal tekur við liðinu af Halldóri Jóhanni Sigfússyni.
Olís-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira