Icelandair hækkar hratt meðan annað hrynur Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. mars 2019 09:51 Vél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í vetrarveðrinu í morgun. Vísir/Vilhelm
Icelandair rýkur upp í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni meðfram veikingu krónunnar. Ætla má að það tengist beint afdrifum eins helsta keppinautarins, WOW air, sem tilkynnti að flugfélagið hefði hætt starfsemi í morgun. Flest önnur félög í Kauphöllinni hafa lækkað umtalsvert. Sem stendur hefur gengi bréfa Icelandair hækkað um rúm 22 prósent. Rétt er að taka fram að skammt er liðið frá opnun markaðarins og því mun þetta eflaust sveiflast mikið eftir því sem líður á daginn. Lækkun annarra félaga nemur á bilinu 2 til 4 prósent. Arion og Eimskip hafa lækkað mest sem af er degi, en fyrrnefnda félagið greindi frá því í morgun að fall WOW myndi ekki hafa bein veruleg áhrif á rekstur bankans. Gengi bréfa HB Granda og Marel hafa þó hækkað lítillega í morgun. Gengi íslensku krónunnar veikist samhliða þessum vendingum, hefur veikst um rúmt prósent sem stendur. Breska pundið kostar nú rúmlega 160 krónur, bandaríkjadalurinn rúmlega 122 og evran rúmlega 137 krónur.
Icelandair WOW Air Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira