Ross Beaty, stjórnarformaður HS Orku, hefur farið fyrir og er aðaleigandi fyrirtækisins Innergex Renewable Energy sem á Magma Energy sem aftur á 53,9 prósent í HS Orku. En hann kom inn í fyrirtækið fljótlega eftir að það var einkavætt árið 2008.
Jarðvarmi, sem er í eigu fjórtán lífeyrissjóða, á 33,4 prósenta hlut í HS Orku og Örk fjárfestingarfélag sem er í eigu nokkurrra lífeyrissjóða og Reykjanesbæjar á 12,7 prósenta hlut. Hins vegar var gengið frá sölusamningi á þeim hlut síðastliðið haust til svissnesks fjárfestingafélags og er verið að ganga frá þeim samningum.
Ef Jarðvarmi nýtir ekki forkaupsrétt sinn mun MIRA, sem er skammstöfun á Macquarie Infrastructure and Real Assets, væntanlega eignast 53,9 prósenta hlut í HS Orku. Fyrirtækið á og rekur tvö raforkuver í Svartsengi og á Reykjanesi auk virkjanaréttar sem er í nýtingaráætlun rammaáætlunar.
Fyrirtækið er þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins á eftir Landsvirkjun og Orkuveitunni og það eina á Íslandi sem er alfarið í eigu einkaaðila. Þá á HS Orka 30 prósenta hlut í Bláa lóninu.
Sýnir áhuga og trú á félaginu
Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, segir það eiga eftir að koma í ljós hvaða þýðingu það hefði að fá MIRA inn í fyrirtækið.„Eins og ég sé þetta núna lítur þetta vel út. Þetta er aðili sem hefur mikinn áhuga á að byggja upp starfsemi á sviði innviða og hefur að mér skilst verið að horfa til fleiri þátta. Starfar mjög víða. Meðal annars í orkumálum,” segir Ásgeir. Hins vegar hafi ekki verið gengið frá samningunum.
HS Orka hefur allt frá árinu 2009 verið í meirihlutaeigu erlendra aðila en ef lífeyrissjóðirnir fjórtán sem eiga Jarðvarma nýta forkaupsrétt sinn gæti meirihlutaeignin orðið íslensk. Kaupverðið er 37 milljarðar króna.
„Það er augljóslega til marks um að aðilar hafa áhuga og trú á fyrirtækinu. Söluferlið sýndi mikinn áhuga aðila á þessu félagi. Það er jákvætt fyrir félagið og hluthafa þess og starfsmenn. Það er góð staðfesting á því starfi sem hér er unnið af hæfu starfsfólki,” segir forstjóri HS Orku.
Ásgeir segir bjart framundan hjá fyrirtækinu og áætlanir uppi um að auka núverandi 120 megavatta framleiðslu um allt að helming á næstu árum. „HS Orka er til dæmis að vinna núna að því að auka orkuvinnslu í Svartsengi og á Reykjanesi án þess að auka upptektina úr jarðhitageyminum. Það er að segja nýta betur það sem nú þegar er tekið til yfirborðs,” segir Ásgeir Margeirsson.
Að auki eigi fyrirtækið aðra virkjanakosti. Helsta hindrunin í að svara vaxandi eftirspurn eftir orku sé hins vegar vangeta dreifikerfisins til að anna eftirspurninni. Það sé alvarlegt vandamál sem þurfi að leysa sem fyrst.