Kaupa meirihluta í HS Orku fyrir 37 milljarða króna Birgir Olgeirsson skrifar 25. mars 2019 13:04 Jarðvarmavirkjunin að Svartsengi á Reykjanesi sem er í eigu HS Orku. Vísir/Vilhelm
Kanadíska orkufyrirtækið Innergex hefur selt tæplega 54 prósenta eignarhlut sinn í HS Orku til fjárfestingasjóðs í stýringu hjá Macquarie Infrastructure and Real Assets.Greint er frá þessu á vef Innergex en þar segir að félagið hafi selt 53,9 prósenta hlut sinn, sem var að fullu í eigi dótturfyrirtækis kanadíska fyrirtækisins sem nefnist Magma Energy Sweden A.B., til fjárfestingasjóðsins. Kaupverðið er 304 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur um 37 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag.Söluferli á þessum hlut hófst í október í fyrra en Innergex eignaðist hlutinn í HS Orku í byrjun ársins 2018 þegar það gekk frá kaupum á öllu hlutafé kanadíska orkufélagsins Alterra. Er HS Orka þriðji stærsti raforkuframleiðandi landsins og jafnframt eina orkufyrirtækið hér á landi sem er í eigu einkafjárfesta. Aðrir hluthafar HS Orku eru samlagshlutafélagið Jarðvarmi, sem er í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða, með 33,4 prósenta hlut og fagfjárfestasjóðurinn ORK með 12,7 prósenta hlut.
Orkumál Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira