ÍBV sótti sigur á Ásvöllum | Ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni Anton Ingi Leifsson skrifar 2. apríl 2019 21:13 Ester átti góðan leik í kvöld. vísir/ernir
Síðasta umferðin í Olís-deild kvenna fór fram í kvöld og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni sem hefst um komandi helgi. ÍBV gerði góða ferð á Ásvelli og vann fjögurra marka sigur, 30-26, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 16-15. Sigurinn gerir það að verkum að ÍBV tekur þriðja sætið og Haukar enda í því fjórða Ester Óskarsdóttir gerði sex mörk úr níu skotum fyrir ÍBV en Sunna Jónsdóttir bætti við fimm mörkum. Berta Rut Harðardóttir skoraði átta mörk fyrir Hauka. Selfoss vann sinn annan leik í röð er liðið vann fjögurra marka sigur á HK, 30-26, en Selfoss var 16-11 yfir í hálfleik. Selfoss vann því síðustu tvo leikina eftir að hafa fallið niður um deild. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var frábær í liði Selfoss en hún skoraði þrettán mörk. Í liði HK skoraði Elva Arinbjarnar sex mörk. Fyrir norðan vann Stjarnan sex marka sigur á KA/Þór, 27-21. Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir Stjörnuna en Stjarnan endar í sjötta sætinu. Nýliðarnir í KA/Þór enda í því fimmta. Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna en Hildur Öder Einarsdóttir varði vel í markinu. Martha Hermannsdóttir var í sérflokki hjá KA/Þór en hún skoraði tíu mörk. Í úrslitakeppninni er því ljóst að Valur spilar við Hauka og ÍBV mætir Fram en úrslitakeppnin hefst um næstu helgi.Lokaniðurstaðan í deildinni: Valur 34 stig Fram 33 stig ÍBV 27 stig Haukar 23 stig KA/Þór 19 stig Stjarnan 15 stig HK 9 stig Selfoss 8 stig
Olís-deild kvenna Mest lesið Kristófer: Það er nú bara október Körfubolti Er fyrrum bikarmeistari með Arsenal að taka við Luton? Fótbolti Gerrard neitaði Rangers Fótbolti „Þetta var gríðarlega stórt og segir helling um liðið“ Sport Ægir: Sigrar mikilvægir á þessum tímapunkti Körfubolti Íslenska amman heimsmeistari fimmta árið í röð Sport Frændur mætast eftir að Djokovic var sleginn út Sport Er Dyche næstur inn hjá Nottingham Forest? Fótbolti Dagskráin í dag: Undankeppni HM 2026 og NFL deildin Sport Kristófer fjarlægir sig frá Coolbet fjölskyldunni Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingar sigursælir í evrópska handboltanum Fimm íslensk mörk í langþráðum sigri Elín Klara var frábær en ekkert gekk hjá Aldísi Ástu Bjarni með tólf og KA vann meistarana Átta frá Blæ dugðu ekki til fyrsta sigursins Handboltinn í fyrsta sæti en tilbiður enn listagyðjuna Draumadeildin staðið undir væntingum Leyfðum okkur hluti sem að við höfum ekki verið að gera Háspenna þegar Selfoss fékk sín fyrstu stig Viktor Gísli og Bjarki unnu í Meistaradeildinni Nýliðarnir hársbreidd frá sigri í Krikanum Guðjón og Arnór stýrðu til sigurs í Þýskalandi Uppgjörið: Valur - Afturelding 35-25 | Magnaður Björgvin Páll lagði grunninn Sammála Snorra: „Alltaf á hreinu að við vorum á sömu blaðsíðunni“ Nýtur sín vel í sterkari deild: „Alveg sannfærður um að ég hafi valið vel“ Anton og Jónas áfram fastagestir á EM Skilur ekki hvernig var hægt að breyta víti í markmannskast ÍBV og Valur ein á toppnum eftir háspennu í Breiðholti Donni öflugur og skildi heimamenn eftir í sárum Íslenska tríóið fagnaði frábærum sigri í toppslag Íslendingarnir frábærir og fögnuðu í Danmörku Allt upp á tíu hjá Elínu Klöru Varaforseti EHF handtekinn Vonast til að landsliðstreyjurnar fari í sölu á næstu vikum „Fjárhagsstaðan býður ekki upp á það að við leikum okkur með þann miðafjölda“ Lovísa Thompson kemur aftur inn í íslenska A-landsliðið Sjáðu svakalega vítakeppni þegar frændliðin börðust í bikarnum Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Sjá meira