
Sterk má sú klíka vera og mikil sú spilling, sem leyfir slíkt
Einhver mesta hvalaslátrun, sem sögur fara af í marga áratugi. Fullgengnir kálfar sprengdir, tættir eða kæfðir með. Og, eins og ég kom inn á, veiðir engir önnur þjóð veraldar langreyðina, næst stærsta spendýr jarðar.
Fyrir 100 árum voru um 1 milljón slík dýr í heimshöfunum, nú er búið að slátra um 90% þeirra. Fullyrðingar um át langreyða á nytjafiskum og afrán, eru hrein firra; þetta eru skíðishvalir, sem lifa á svifi og gefa – eins og áratuga vísindarannsóknir sýna og sanna – lífríkinu meira, en þeir taka.
Í nefndri grein fáraðist ég yfir því, að – sé heiftarlegt dýraníð lagt til hliðar, í bili – þá vantaði allar rannsóknir, sem sýndu, hvaða áhrif þessar veiðar hefðu á þýðingarmestu atvinnugreinar okkar; ferðaþjónustuna og útflutning á sjávarafurðum.
Eins og menn vita, stendur ferðaþjónusta og sjávarútvegur, til samans, undir um/yfir 70% af öllum okkar gjaldeyristekjum, meðan hvalveiðar ná ekki einu sinni 0,1%.
Ég skoraði einkum á ferðamálaráðherra, en auðvitað líka á sjávarútvegsráðherra, umhverfisráðherra og utanríkisráðherra – vitaskuld varðar þetta forsætisráðherra Vinstri grænna ríkulega líka, en hún var, eins og kunnugt er, á móti hvalveiðum, þar til hún komst í forsætisráðherrastól -, að láta kanna erlendis, hvaða áhrif nýjar, stórfelldar hvalveiðar myndu hafa á ferðaþjónustuna og útflutning sjávarafurða. Líka auðvitað á merkið okkar allra; ÍSLAND.
Lengst af hafa allir þessir ráðherrar, nema umhverfisráðherra, haldið því fram - og það er fullyrt í skýrslu Háskóla Íslands um hvalveiðar, frá í janúar sl. - að hvalveiðar hefðu engin sýnileg eða kunn neikvæð áhrif á þau fjöregg þjóðarinnar, sem ferðaþjónusta og sjávarútvegur eru.
Fyrir tilviljun komst undirritaður að því, að hér hafa ráðherrar og ríkisstjórn beitt landsmenn alvarlegum blekkingum og farið með rangt mál.
Í mínum augum er þetta stóralvarlegt mál, sem í öllum siðmenntuðum þjóðfélögum, þar sem ég þekki til, hefði átt að kosta - alla vega forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra - stólinn, reyndar alla ríkisstjórnin; svo alvarlega hefur hér verið brotið á almennings- og þjóðarhagsmunum.
Í Bandaríkjunum hefur farið fram árleg könnun á vegum Íslandsstofu og/eða utanríkisráðuneytisins á afstöðu Bandaríkjamanna til hvalveiða frá því 2004. Er þetta verkefni kallað „Iceland Naturally“.
Skv. þessari könnun, sem undirrituðum tókst að slíta út úr utanríkisráðuneytinu, eftir eftirgangsmuni (væntanlega á grundvelli upplýsingalaga), telja 63% Bandaríkjamanna, að hvalir séu í útrýmingarhættu og 49% - helmingur þjóðarinnar -, segjast ekki munu kaupa afurðir eða vörur frá þjóð, sem leyfir hvalveiðar. Þetta hlutfall hefur farið hækkandi ár frá ári.
Það er ljóst, að þessi afstaða muni ekki síður gilda um ferðalög til landa, sem leyfa hvalveiðar.
Sams konar könnun hefur verið gerð í Kanada frá 2008, en þar telja 66% landsmann, að hvalir séu í útrýmingarhættu og 45% Kanadabúa segjast munu sneiða hjá vörum frá þjóð, sem veiðir hvali.
Stjórnvöld hafa ekki framkvæmt samskonar kannanir í Evrópu, svo vitað sé, jafn vítaverð vanræksla og það er, en mat undirritaðs er, að þar sé andstaða við hvalveiðar og andúð gegn hvalveiðiþjóð og vöru- og ferðaþjónustutilboði hennar enn hærri.
Útflutningsverðmæti ferðaþjónustu og sjávarafurða nema um eða yfir 700 milljörðum króna á áru. Ef þó ekki nema 15% Bandaríkjamanna og Evrópubúa, myndu sniðganga Ísland og Íslendinga vegna hvalveiða, næmi tjónið fyrir landsmenn yfir 100 milljörðum á ári. Útflutningstekjur af hvalveiðum, nema um 1 milljarði á ári.
Sterk má sú klíka vera og mikil má sú spilling, sem leyfir slíkt!!!
Auðvitað hafði sjávarútvegsráðherra, forsætisráðherra og ríkisstjórnin öll fullan aðgang að þessum upplýsingum, en í stað þess að birta þær og hafa þær að leiðarljósi við ákvörðun um hvalveiðar, voru upplýsingarnar ekki birtar – þær í raun faldar fyrir almenningi – og ákvörðun tekin um að heimila stórfelldar nýjar hvalveiðar, til langs tíma, þvert á hagsmuni langstærstu atvinnugreina landsins og þar með þvert á hagsmuni allra Íslendinga.
Svei þér Kristján Þór, svei þér Katrín; gagnvart ykkur – reyndar gagnvart allri ríkisstjórninni - getur ekki nema eitt boð gilt: Takið staf ykkar og hatt og komið ykkur á brott.
Tengdar fréttir

„Lítill, ljótur og villimannslegur skítabissness“
Engin önnur þjóð veiðir langreyði (stórhveli). Við erum einasta þjóð veraldar, sem drepur þennan friðsama risa úthafanna; næststærsta spendýr jarðar.
Skoðun

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar

Læknafélagið virðir ekki afstöðu félagsmanna sinna
Bjarni Jónsson skrifar

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar