Íþróttadeild spáir Stjörnunni 5. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar sem er tveimur sætum neðar en liðið endaði á síðustu leiktíð og vafalítið langt frá markmiðum bikarmeistaranna. Stjarnan var lengi vel í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð og tókst loks að verða bikarmeistari í fyrsta sinn en liðið skoraði næst mest allra liða í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð.
Afskaplega litlar breytingar eru á leikmannahóp Stjörnunnar fyrir komandi tímabil en liðið hefur aðeins styrkt stoðirnar í varnarleiknum. Liðið er að eldast en er aftur á móti reynslumikið og býr að ungum og spennandi leikmönnum sem gætu fengið fleiri mínútur í sumar. Gengið á undirbúningstímabilinu var upp og ofan en 6-0 skellur á móti ÍA hringdi ákveðnum viðvörunarbjöllum.
Þjálfari Stjörnunnar er sem fyrr Rúnar Páll Sigmundsson sem er nú búið að gera liðið bæði að Íslands- og bikarmeistara. Rúnar er að fara inn í sitt sjötta tímabil sem þjálfari Stjörnunnar en liðið hefur endað á meðal þriggja efstu undanfarin þrjú ár og aldrei neðar en í fjórða sæti síðan að hann tók við.
Baksýnisspegillinn
Þó það tengist Pepsi Max-deildinni ekki beint var stóra stundin hjá Stjörnunni þegar að liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn með sigri í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik á móti Breiðabliki.
Stjörnumenn voru búnir að fara tvisvar sinnum áður í úrslitaleikinn en tapa í bæði skiptin þannig það var kærkomið fyrir Garðbæinga að fagna loks í Laugardalnum.
Liðið og leikmenn

Hryggjarstykkið
Haraldur Björnsson (f. 1989): Markvörðurinn þrítugi var fljótur að aðlagast lífinu hér heima eftir komuna úr atvinnumennskunni og hefur verið einn sá besti í deildinni undanfarin tvö tímabil. Stjarnan fékk á sig næst flest mörkin af fimm bestu liðunum á síðustu leiktíð en sjaldnast var við Harald að sakast sem varði oft á tíðum meistaralega. Haraldur er mikill karkater sem þarf að eiga annað eins tímabil ætli Stjarnan sér að ná markmiðum sínum.
Baldur Sigurðsson (f. 1985): Mývetningurinn magnaði slær hvergi slöku við en hann spilaði 20 leiki af 22 í deildinni í fyrra og leiddi Stjörnuna til bikarmeistaratitils í fyrsta sinn. Baldur er óumdeildanlega einn besti leikmaður efstu deildar síðasta áratuginn. Þrátt fyrir að vera röngu megin við þrítugt fór Baldur í flest skallaeinvígi allra í deildinni í fyrra eða 300 og vann helming þeirra.
Guðjón Baldvinsson (f. 1986): Eftir að eiga sitt besta tímabil þegar horft er til fjölda marka árið 2017 (12 mörk í 19 leikjum) skoraði Guðjón „aðeins“ fimm á síðustu leiktíð. Hann bætti það reyndar upp með sjö stoðsendingum og kom því með beinum hætti að tólf mörkum. Þessi óþreytandi og sívinnandi framherji er lykillinn að leikstíl Stjörnunnar en mörkin mættu vera fleiri í sumar ætli Stjarnan sér að vera í toppbaráttunni.
Markaðurinn

Martin Rauschenberg var frábær fyrir Stjörnuna þegar að liðið varð Íslandsmeistari árið 2014 þannig að honum fylgja ákveðnar væntingar en Elís Rafn Björnsson og Ásgeir Þór Magnússon verða lítið annað en varamenn þegar út í mótið verður komið.
Stjörnumenn hafa vissulega misst mjög lítið og fengu Dana á láni frá AGF sem er spurningamerki fyrir sumarið en í heildina hefur ekki mikið verið að frétta á leikmannamarkaðnum hjá Stjörnunni.
Markaðseinkunn: C+
Hvað segir sérfræðingurinn?
„Stjarnan er með lið sem getur verið í toppbaráttu og ég held að hún verði þar en til þess að vera í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn hefði ég viljað sjá Stjörnuna fara af meiri krafti á leikmannamarkaðinn og sækja sér betri menn.“
„Við sáum hvað gerðist í fyrra þegar að Þórarinn Ingi mætti frá FH. Það hristi upp í hlutunum og kom með þá innspýtingu sem að ég held að vanti núna,“ segir Atli Viðar Björnsson.
Í ljósi sögunnar

Daníel Laxdal er leikjahæsti Stjörnumaðurinn í efstu deild en hann lék sinn tvö hundraðasta leik síðasta sumar og er kominn með 207 leiki. Daníel er með 51 leik í forskot á næsta mann sem er bróðir hans Jóhann Laxdal.
Halldór Orri Björnsson er langmarkahæsti Stjörnumaðurinn í efstu deild en hann skoraði 56 mörk í 146 leikjum til ársins 2016 og er nú með 23 marka forskot á Hilmar Árna Halldórsson sem hefur þó verið að nálgast hann á síðustu árum.
Halldór Orri Björnsson hefur gefið flestar stoðsendingar fyrir Stjörnuna í efstu deild eða 27 á sjö tímabilum. Hann hefur sex stoðsendinga forskot á Veigar Pál Gunnarsson og þá eru Guðjón Baldvinsson (20) og Hilmar Árni Halldórsson (19) farnir að nálgast Halldór Orra eftir síðasta tímabil.
Stjörnumenn eiga ekki eitt ákveðið vinsælt sæti í nútímafótbolta (1977-2018) en þeir hafa aldrei endað oftar en tvisvar í sama sæti í efstu deild.
Veigar Páll mætti heim með stæl og leiddi uppeldisfélagið til Íslandsmeistaratitils en það þarf nú ekki að leita lengi að honum þar sem að Veigar er í þjálfarateyminu og reynir þannig að hafa sín áhrif á liðið.