Eins og alltaf eru margir spennandi leikmenn í liðum deildarinnar sem vert er að fylgjast með. Hér fyrir neðan má sjá tíu leikmenn sem fótboltaáhugafólk ætti að fylgjast með í sumar.
Sýnt verður frá Pepsi Max-deild karla á Stöð 2 Sport í allt sumar. Þrír leikir eru í beinni útsendingu um helgina, þeirra á meðal leikur Vals og Víkings klukkan 19.40 í kvöld.

ÍA
18 ára
Miðjumaður
Sonur handboltagoðsagnarinnar Bjarka Sigurðssonar hefur vakið verðskulda athygli fyrir frammistöðu sína inni á fótboltavellinum. Uppalinn hjá Aftureldingu en gekk í raðir ÍA fyrir síðasta tímabil. Lék 16 leiki í Inkasso-deildinni í fyrra og hefur sýnt góða takta á undirbúningstímabilinu. Einn fjölmargra spennandi leikmanna í röðum ÍA sem ætlar sér stóra hluti í sumar.

Víkingur R.
20 ára
Miðjumaður
Eftir að hafa verið í herbúðum Heerenveen í Hollandi frá 2015 sneri Júlíus heim í Víkina í vetur. Fastamaður í U-21 árs landsliðinu. Öflugur miðjumaður sem verður væntanlega í stóru hlutverki hjá Víkingi í sumar. Það verður gaman að sjá hvernig Júlíus spjarar sig á móti bestu miðjumönnum deildarinnar. Þarf að láta til sín taka ef ekki á illa að fara hjá Víkingi.

HK
24 ára
Miðjumaður
Er á leið inn í sitt fyrsta tímabil í efstu deild, 24 ára gamall. Meiðsli hafa sett stórt strik í reikning Ólafs sem þótti mikið efni og var á sínum tíma yngsti leikmaður til að spila deildarleik fyrir HK. Átti frábært tímabil með Kópavogsliðinu í Inkasso-deildinni í fyrra. Vel spilandi miðjumaður með mikla yfirferð, á auðvelt með að leysa pressu og getur spilað vörn. Vonandi fyrir Ólaf og HK heldur hann sama dampi og í fyrra.

Breiðablik
22 ára
Miðjumaður
Gekk í raðir Breiðabliks í vetur eftir að hafa leikið erlendis síðan 2013. Var í fimm ár hjá AZ Alkmaar og var svo lánaður til sænska B-deildarliðsins Värnamo í fyrra. Hefur leikið fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands. Fær tækifæri til að nýta þá miklu hæfileika hann býr yfir í sumar og verður væntanlega í stóru hlutverki á miðju þeirra grænu.

HK
20 ára
Varnarmaður
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Birkir Valur verið lykilmaður í liði HK í nokkur ár. Á fjölda leikja að baki fyrir yngri landsliðin. Sterkur varnarmaður og leiðtogatýpa. Getur bæði spilað sem hægri bakvörður og miðvörður. Enn meira mun mæða á Birki Val í vörn HK eftir að Guðmundur Þór Júlíusson meiddist í vetur.

ÍA
23 ára
Framherji
Skrefið úr næstefstu deild í þá efstu er stórt og hefur reynst mörgum erfitt en menn með svona nafn geta eiginlega ekki klikkað. Gonzalo hefur klifið metorðastigann hér á landi undanfarin ár. Skoraði 16 mörk fyrir Hugin í 2. deildinni 2017 og tíu mörk fyrir Víking Ó. í Inkasso-deildinni í fyrra. Ákvað svo að freista gæfunnar með ÍA í Pepsi-deildinni. Spánverjinn hefur verið frábær á undirbúningstímabilinu og skoraði m.a. þrennu í 6-0 sigri ÍA á Stjörnunni í Lengjubikarnum.

Breiðablik
23 ára
Miðjumaður
Blikar hafa mikla trú á Alexander. Miðjumaðurinn hefur verið þjakaður af meiðslum undanfarin ár og þrátt fyrir að vera orðinn 23 ára hefur hann leikið afar fáa leiki í meistaraflokki. Fékk langþráð tækifæri sem lánsmaður hjá Víkingi Ó. í fyrra. Eftir að Breiðablik kallaði hann til baka stórsá á Víkingsliðinu. Alexander skoraði eftir fimm mínútur í sínum fyrsta leik með KR (sigurmark gegn KR) en kom lítið við sögu eftir það.

KR
18 ára
Varnarmaður
Varð Íslandsmeistari með 2. flokki KR 2017 og öðlaðist svo dýrmæta reynslu þegar hann lék sem lánsmaður með Þrótti R. í Inkasso-deildinni í fyrra. Gríðarlega efnilegur miðvörður sem fékk talsvert að spila á undirbúningstímabilinu. Sagan segir að það sé erfitt fyrir unga leikmenn að brjótast inn í aðallið KR en fyrr en síðar verður Finnur Tómas orðinn fastamaður hjá liði í Pepsi Max-deildinni.
Ágúst Eðvald Hlynsson
Víkingur R.
19 ára
Miðjumaður
Varð yngsti leikmaðurinn til að leika fyrir Breiðablik 2016, þá aðeins 16 ára. Fór sama sumar til Norwich City og eftir tvö ár hjá enska liðinu fór hann til Bröndby í Danmörku. Er nú kominn heim og skrifaði undir þriggja ára samning við Víking. Ágúst er einn af nokkrum ungum og spennandi leikmönnum í Víkingsliðinu og gæti sprungið út í sumar.
Brynjólfur Darri Willumsson
Breiðablik
18 ára
Miðjumaður
Willum Þór Willumsson sló í gegn í fyrra og nú gæti röðin verið komin að yngri bróður hans, Brynjólfi Darra. Átti eftirminnilega innkomu í lið Breiðabliks á síðasta tímabili þegar hann skoraði jöfnunarmarkið gegn Víkingi Ó. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í uppbótartíma framlengingar. Lék alls níu leiki í fyrra og fær væntanlega fleiri tækifæri í sumar. Skemmtilegur leikmaður sem sýndi góða takta á undirbúningstímabilinu.