Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem Maskína birti í dag en það skal tekið fram að Sigríður steig til hliðar stuttu áður en könnun þessi var lögð fyrir Íslendinga.
Alls voru 67,6% ánægð með störf Lilju. Á eftir henni kemur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og starfandi dómsmálaráðherra en 43,2% voru ánægð með ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
Þá var einnig nokkuð mikil ánægja með Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfisráðherra, og Guðlaug Þór Þórðarson. 34% voru ánægð með Guðmund og tæp 33% ánægð með Guðlaug.

Almennt meiri ánægja með ríkisstjórnina
Almennt eru fleiri ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar núna heldur í lok ársins 2018 þegar ánægja með ráðherra var síðast könnuð. Svarendur voru 848 talsins og koma úr Þjóðgátt Maskínu sem er hópur fólks sem er dreginn með tilviljun úr þjóðskrá og svarar á netinu. Könnunin fór fram dagana 15.-27. mars 2019.Að því er séð verður er mikil óánægja með Sigríði, Kristján Þór og Bjarna en hátt í 66% kváðust óánægð með störf Sigríðar og einungis 13,8% ánægð.
Alls var 51,6% óánægð með frammistöðu Bjarna eða meira en helmingur þeirra. 23,4% var í meðallagi ánægt með frammistöðu hans og einungis 25% voru ánægð með hann.
Karlar voru ánægðari með frammistöðu Bjarna en konur en þær voru ánægðar með frammistöðu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.
Rúm 48% aðspurðra voru óánægð með Kristján Þór og einungis 18% ánægð með hann.
Munur á afstöðu eftir stjórnmálaskoðunum
Töluverður munur var á viðhorfi til starfa ráðherra eftir stjórnmálaskoðunum aðspurðra. Þannig voru kjósendur Pírata óánægðari en aðrir með störf Bjarna, Þórdísar Kolbrúnar, Sigurðar Inga og Ásmundar Einars.Eins reyndust kjósendur Samfylkingarinnar óánægðari en aðrir með störf Sigríðar, Kristjáns Þórs og Guðlaugs Þórs.