
Stundum er skegg keisarans fast við andlitið á honum
Hér er ein skoðun á því hvernig við ættum að gera það:
Það bárust um daginn þær fréttir af aðalfundi Landsvirkjunar að afkoma hennar hefði verið betri árið 2018 en í nokkurn annan tíma og þrátt fyrir það ætlaði hún að hækka gjaldskrá sína um þrjátíu prósent? Landsvirkjun er í eigu ríkisins þannig að tekjur hennar umfram rekstrarkostnað eru einfaldlega óbein skattlagning. Raforka sem er seld til málmbræðslna í eigu erlendra fyrirtækja er verðlögð samkvæmt samningum til margra ára þannig að ekki er líklegt að þær gjaldi í bráð þessa aukna fjárþorsta Landsvirkjunar. Það sama verður ekki sagt um íslensk fyrirtæki og heimilin í landinu. Útsöluverð á rafmagni var notað til þess að sannfæra erlend fyrirtæki um að byggja málmbræðslur í landinu á þeim tíma þegar við sáum ekki vænni kost til þess að nýta orkuna okkur til framfærslu. Nú held ég að sé kominn tími á að við horfum til þess möguleika að nýta auðveldan aðgang að vistvænni orku til þess að ýta undir annars konar og meira aðlaðandi uppbyggingu. Við eigum að hafa raforkuna á framleiðsluverði og ekki krónu umfram það til þess að lækka kostnað heimilanna og hlúa að fjölbreytni í íslensku atvinnulífi. Eitt dæmi um möguleika sem lægra rafmagnsverð gæti skapað liggur í landbúnaði. Í dag flytjum við inn meiri hlutann af því grænmeti sem við neytum frá löndum sem rækta grænmeti í gróðurhúsum. Mjög stór hluti af rekstrarkostnaði gróðurhúsa fer í rafmagn. Við eigum að sjá til þess að við séum samkeppnishæf í rekstri gróðurhúsa svo við getum ræktað okkar grænmeti sjálf, þannig gætt íslenskan landbúnað nýju lífi og aukið sjálfbærni mannlífs á Íslandi. Annað dæmi liggur í gagnaverum sem eru mjög orkukræf. Gagnaverin og þjónusta og tækniþróun í kringum þau gætu, ef rétt er haldið á spilunum, gert upplýsingatækni að raunverulegum stóriðnaði í landinu í stað þess að vera sífellt einhvers konar hérumbil grein. Til þess þurfa gagnaverin að eiga aðgang að miklu ódýrari orku. Það væri líka sniðugt ef Alþingi setti lög til að tryggja öryggi gagna í gagnaverum til dæmis með því að lýsa gagnaverin helg vé, sem enginn mætti sækja í gegn vilja þeirra sem gögnin eiga, hvorki hið opinbera á Íslandi né fulltrúar erlendra ríkja. En það er önnur saga.
Það sem skiptir máli þegar við ræðum um lagasetningu sem lýtur að örlögum orku sem við virkjum úr íslenskri náttúru er að hún gegnir ekki bara því hlutverki að lýsa okkur í myrkri og hlýja í kulda, heldur býr hún líka til möguleika á því að skapa og framkvæma. Ísland er enn þann dag í dag harðbýlt og fjarri góðu gamni þannig að við eigum oft undir högg að sækja í samkeppni við atvinnuvegi annarra þjóða. Vistvæna orkan okkar ætti að geta jafnað samkeppnisaðstöðuna á mörgum sviðum ef hún væri skynsamlega verðlögð. Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar en hagar sér því miður eins og það sé hennar aðalmarkmið að fá sem hæst verð fyrir rafmagnið, án tillits til þess hvernig það bitnar á atvinnuþróun í landinu. Ein af þeim aðferðum sem hún virðist vilja nota til þess að hækka verðið er að selja rafmagn í gegnum sæstreng til annarra landa. Það er lítill vafi á því að það væri hægt að fá hærra verð fyrir rafmagnið annars staðar sem myndi leiða til þess að verið hækkaði hér og samkeppnisaðstaða okkar yrði öll önnur og verri. Við komum aldrei til með að geta lifað af því einu saman að selja rafmagn, en við gætum svo sannarlega lifað mun betra lífi með því að nýta það til að bæta samkeppnisaðstöðu okkar á hinum ýmsu sviðum. Mín afstæðiskenning sem lýtur að verði á rafmagni er svona: Frá sjónarhóli Landsvirkjunar sem sjálfstæðs fyrirtækis á að selja rafmagn eins dýrt og mögulegt er. Frá sjónarhóli íslenskrar þjóðar á Landsvirkjun að selja rafmagn eins ódýrt og hægt er. Landsvirkjun er ekki sjálfstætt fyrirtæki heldur eign þjóðarinnar. Hagsmunir þjóðarinnar eiga að ráða og það er ekkert afstætt við það.
Þegar maður veltir fyrir sér orkupakkanum þriðja í tengslum við hugmyndir um það hvernig orkan sem við virkjum úr íslenskri náttúru sé nýtt og mikilvægi hennar fyrir framtíð þjóðarinnar, þá held ég að við ættum láta hann vera þótt ekki sé nema vegna þeirra skilaboða sem samþykkt hans myndi senda börnum okkar og barnabörnum. En ef Alþingi samþykkir orkupakkann þriðja held ég að við lifum það svo sem af vegna þess að við erum öll, 350 þúsund, orðin atvinnumenn og konur í því að takast á við þau bjánasköp kjörinna fulltrúa þjóðarinnar sem þeir fremja gjarnan í nágrenni Austurvallar, þau afdrifaríku inni í hlöðnu steinhúsi sem blasir við Jóni Sigurðssyni, þau sem eru næstum takmarkalaust eymdarleg í depurð sinni í öðrum húsum þar í nágrenninu.
Skoðun

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar

Hin raunverulega byggðastefna
Jón Þór Kristjánsson skrifar

Sameining Garðabæjar og Hafnarfjarðar – kostir – ókostir - skynsemi
Ó. Ingi Tómasson skrifar

Rúmir 30 milljarðar í fangelsi
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Sérstök staða orkusveitarfélaga!
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Miklar endurbætur á lánum menntasjóðs námsmanna
Elín Íris Fanndal skrifar

Drögum úr fordómum í garð Breiðholts
Alex Vor Ólafs,Jörundur Þór Hákonarson,Theodóra Líf Reykdal skrifar