22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Karl Lúðvíksson skrifar 17. maí 2019 08:31 Hópurinn sem útskrifaðist úr veiðileiðsögn
Veiðileiðsögn er vinsælt og eftirsótt sumarstarf en það er margt sem þarf að hafa í huga við veiðileiðsögn og hingað til hafa leiðsögumenn aflað sér þekkingar með tímanum. Það varð breyting á því í vetur þegar nám fyrir veiðileiðsögn var sett á laggirnar en námið undirbýr þá sem það stunda vel fyrir að takast á við þetta krefjandi starf. Um síðustu helgi útskrifaði Ferðamálaskóli íslands hóp 22 veiðileiðsögumanna sem stundaði nám í vetur sem er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi og voru fyrirlesarar meðal annars frá Landsambandi Veiðifélaga (LV) og hinum ýmsu veiðiám t.d. Ytri Rangá, Vatnsdalsá og Breiðdalsá og Jöklu. Námið var alls 70 stundir og er hugsað fyrir þá sem hug hafa á að gerast veiðileiðsögumenn við ár og vötn fyrir jafnt íslenska sem og erlenda veiðimenn. Meðal kennsluefnis var meðal annars undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska ásamt ýmsum öðrum fróðleik. Og síðast en ekki síðst var lögð mikil áhersla á skyndihjálp og áfallahjálp og sérstaklega til þátta sem tengst gæti hættum við ár og vötn. Að lokum var síðan 2 daga ferð í Ytri Rangá þar sem nemendur fengu að spreyta sig í kasttækni með mismundandi veiðarfærum, einhendum, tvíhendum og kaststöngum undir handleiðslu kennara. Nú þegar hafa veiðileyfissalar haft samband og óskað eftir nýútskrifuðum veiðileiðsögumönnum til starfa á komandi sumri. Allir leiðbeinendurnir hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn við ár og vötn eða vísindamenn hver á sínu sviði.
Mest lesið 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar Veiði 94 sm hængur úr Laxá í Kjós Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Mikil fjöldi erlendra gæsaveiðimanna Veiði 206 laxar á svæðum SVFR í Soginu Veiði 176 laxa holl í Haffjarðará Veiði Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði