Hvaðan færð þú innblástur?
Það er ekkert eitthvað eitt sérstakt, það er alltaf mismunandi og kemur til manns á óvæntan hátt. En kannski er rauði þráðurinn flæði fatnaðarins. Það veitir mér innblástur að taka eftir hvað fólk getur borið fatnaðinn á mismunandi hátt eða sett saman alklæðnað á mismunandi hátt. Mér finnst svo áhugavert þegar karaktereinkenni einstaklingsins birtast í fatavalinu.

Ég er búinn að vera að fylgjast mikið með Andra Hrafni og Karenu Briem, en þau eru búin að vera að hanna útlit og fatnað Hatara núna í kringum Eurovision. Ég er líka hrifinn af því sem vöruhönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir hefur verið að gera og það sem textíl- og fatahönnuðurinn Tanja Huld Levý hefur verið að gera finnst mér margt mjög flott. Svo veit ég að Gréta Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður, er með verkefni í bígerð sem mér finnst mjög áhugavert. Hún er mjög hæfileikarík.
Áttu einhvern uppáhalds fatahönnuð?
Í augnablikinu held ég mikið upp á Thom Brown. Hann vinnur mikið með súrrealisma og húmor. Mér finnst heimurinn sem hann skapar og bara allt sem hann er að gera alveg ótrúlega áhugavert.
Finnst þér rauði þráðurinn í þinni eigin hönnun hafa breyst mikið, til að mynda eftir að náminu lauk?
Hann hefur ekki endilega breyst, en hann hefur fínpússast.
Hver eru þín uppáhalds tískuhús eða fatamerki?
Það er skómerkið Syro sem gerir einstaklega flott hæla, líka í karlmannsstærðum. Mér finnst áhugavert að leika sér með hvar línan er dregin með hvað sé karlmanns- og hvað sé kvenmannsfatnaður.

Ég kaupi mest notuð föt, sem sagt vintage. Þá finnst mér Rauðakrossbúðin oft flott og líka ný búð í Ingólfsstræti sem heitir Wasteland.
Hannar þú mesta hlutann af þínum eigin fötum eða því sem þú gengur í hversdags?
Já, ég klæðist bæði eigin hönnun eða breyti því sem ég hef keypt. Þá kannski breyti ég lítillega vintage flík eftir mínu eigin höfði.
Langaði þig alltaf til að verða fatahönnuður?
Ég hef alltaf teiknað mikið en ég var samt ekki alltaf á því að ég myndi enda í fatahönnun. Þetta þróaðist svolítið með því að ég var að teikna upp teiknimyndapersónur. Boltinn byrjaði svolítið að rúlla þegar ég fór að velta meira fyrir mér smáatriðum fígúranna sem ég var að teikna.
Hvað finnst þér óspennandi við tískuna í dag?
Mér finnst bara mikilvægt að það skíni eitthvað persónulegt í gegn í klæðavali fólk. Mér finnst óspennandi að allir séu eins. Ég vil sjá eitthvert sjálfstæði í stíl fólks, þannig að það skíni einhver þarna í gegn.
Safnar þú einhverju þegar það kemur að fötum?
Ég gerði það einu sinni en er núna meira einbeittur í að vinna í minni eigin hönnun og skapa.
Hvaða stjarna finnst þér hafa flottan eða áhugaverðan stíl?
Solange. Stíllinn hennar, söngurinn, framkoma og allt við hana finnst mér áhugavert.