Mest spennandi X-Men myndin til þessa Sena kynnir 29. maí 2019 08:45 Úrvalslið leikara fer með hlutverk í myndinni meðal annars, Nicholas Hoult, Jessica Chastain, Sophie Turner, James McAvoy og Michael Fassbender
X-Men: Dark Phoenix verður frumsýnd þann 5. júní. Myndin er hápunktur tuttugu ára sögu X-Men kvikmyndanna og beint framhald af X-Men: Apocalypse. X-Men: Dark Phoenix er sögð sú mest spennandi af þeim öllum. Myndin er sú sjöunda í aðalröð kvikmynda um X-Men fjölskylduna en alls eru þá myndir tengdar X-Men sögunum orðnar tólf. X-Men fjölskyldan glímir hér við erfiðasta andstæðing sinn til þessa og þarf að horfast í augu við að sá andstæðingur, er einn úr fjölskyldunni. Leikkonan Sophie Turner, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem Sansa Stark í Game of Thrones, fer með aðalhlutverk myndarinnar. Sophie leikur hina kraftmiklu Jean Grey sem umbreytist í Dark Phoenix, eftir að hún kemst í snertingu við yfirnáttúrulegt afl. Breytingarnar leiða til ofurkrafta sem gera Jean að sterkustu X-Men persónunni. En Jean reynist erfitt að ná tökum á kröftunum og þarf auk þess að takast á við persónuleg vandamál. Jean missir stjórnina, sundrar X-Men fjölskyldunni og hótar að eyða plánetunni.Sophie Turner er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Sansa Stark í Game of Thrones. Hún fer með hlutverk Jean Grey.Ekki eins og hinarLeikstjóri myndarinnar, Simon Kinberg, segir nýju myndina skera sig úr. „X-Men: Dark Phoenix er ólík öðrum ofurhetjumyndum að því leiti að hér standa persónur ekki upp og dusta af sér rykið eftir að hafa fallið fram af byggingum. Það er ákveðið raunsæi í þessari mynd og í henni fylgja afleiðingar athöfnum persóna. Í þessari mynd gerast sjokkerandi hlutir, dramatískir hlutir og ekki síst spennuþrungnir.“ Simon Kinberg er þekktur fyrir framleiðslu á The Martian, Logan, Fantastic Four og X-Men: Days of Future Past.Simon Kinberg, leikstjóri X-Men: Dark Phoenix segir hana ólíka öðrum ofurhetjumyndum.Tuttugu ára saga vinsælda20th Century Fox fagnaði nýverið hápunkti x-Men sögunnar og 20 ára vinsældum X-Men myndanna. Hér má sjá The Legacy video, stutt samantekt af sögu X-Men myndanna.Forsala er hafin á X-Men: Dark Phoenix í kvikmyndahúsum á Íslandi. Myndin verður frumsýnd þann 5. júní og sýnd í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Sambíó Egilshöll, Sambíó Álfabakka og Borgarbíói Akureyri. Leikstjórn: Simon Kinberg Framleiðendur: Simon Kinberg, p.g.a., Hutch Parker, p.g.a., Lauren Shuler Donner, Todd Hallowell. Leikarar: James McAvoy, Michael Fassbender, Jennifer Lawrence, Nicholas Hoult, Sophie Turner, Tye Sheridan, Alexandra Shipp, Kodi Smit-McPhee, Evan Peters, og Jessica Chastain.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Senu.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Fleiri fréttir Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Sjá meira