Fimmfaldi heimsmeistarinn, Lewis Hamilton, kom fyrstur í mark á sínum Mercedes eftir að hafa ræst á ráspól.
Mercedes liðið gerði þó mistök er Hamilton kom inn á þjónustusvæðið á 11. hring er öryggisbíllinn var kallaður út. Þá setti liðið meðalhörðu dekkin undir bíl Hamilton á meðan að flestir aðrir settu hörðu dekkin undir.
,,Þessi dekk eru búin, það þarf kraftaverk til ef við ætlum okkur að vinna’’ sagði Lewis í talstöðinni til liðsins þegar um 20 hringir voru eftir.
Max Verstappen sótti að Hamilton stanslaust síðustu 50 hringi kappakstursins. Bretinn vissi þó vel að erfitt er að taka framúr á þröngum götum Mónakó.
Verstappen reyndi þó allt hvað hann gat, sem endaði með að bílarnir skullu saman þegar aðeins tveir hringir voru eftir. Sem betur fer urðu engar skemmdir á bílunum, en Verstappen þurfti þó að sætta sig við annað sætið.
Hollendingurinn endaði þó fjórði eftir að hafa verið refsað um fimm sekúndur. Refsingin var fyrir glæfraakstur á þjónustusvæðinu er Max keyrði á Mercedes bíl Valtteri Bottas.

,,Þessi sigur var fyrir Niki’’ sagði Hamilton eftir keppnina. ,,Hann hafði mikil áhrif á minn feril og þetta lið, aðal markmið mitt í dag var að gera hann stoltann’’.
Hamilton keppti með rauðan hjálm á sunnudaginn í minningu Niki Lauda, sem lést á mánudaginn. Þá voru einnig öryggishlífar Mercedes bílanna málaðar rauðar til að minna á frægu rauðu derhúfuna sem Lauda var ávalt með.
Sebastian Vettel kom annar í mark á sínum Ferrari og liðsfélagi Lewis, Valtteri Bottas, varð að sætta sig við þriðja sætið.
Þetta var því í fyrsta skiptið á árinu sem að Mercedes ökuþórarnir enda ekki í fyrsta og öðru sæti. Úrslitin þýða að Hamilton eykur forskot sitt á toppi heimsmeistaramótsins í 17 stig.
Liðsfélagi Vettel hjá Ferrari, Charles Leclerc, vill sennilega gleyma þessari helgi sem fyrst. Heimamaðurinn ræsti sexdándi eftir mistök Ferrari liðsins í tímatökum. Leclerc varð frá að hverfa á 15. hring eftir að hafa skemmd bíl sinn í árekstri.
Næsta keppni fer fram í Kanada eftir tvær vikur. Hamilton hugsar sér gott til glóðarinnar því hann hefur alls unnið sex sinnum á Montreal brautinni.