Gott fyrir Valsmenn að skoða töfluna frá því á sama tíma í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. maí 2019 15:30 Valsmenn fagna marki Ólafs Karls Finsen í Krikanum í gær. Vísir/Vilhelm
Titilvörn Vals hefur ekki byrjað vel en liðið situr í 9. sæti Pepsi Max deildar karla eftir fimm umferðir og er heilum níu stigum á eftir topplið ÍA. Það er hins vegar mikið eftir af Íslandsmótinu og það væri gott fyrir leikmenn Valsliðsins að skoða töfluna frá því á sama tíma í fyrra. Valsliðið var nefnilega bara í áttunda sæti eftir fyrstu fimm umferðirnar fyrir ári síðan. Valur var reyndar með tveimur stigum meira þá og fjórum stigum nær toppsætinu en það breytir ekki því að Hlíðarendapiltar komust í gegnum erfiða byrjun fyrir ári síðan. Valsliðið tapaði 2-1 á útivelli á móti Grindavík í 5. umferðinni sumarið 2018 en það var fyrsta deildartap liðsins á leiktíðinni. Tapið á móti FH á Kaplakrikavelli í gær var aftur á móti þriðja deildartap liðsins í sumar en liðið tapaði einnig fyrir KA (0-1) og ÍA (1-2). Valsmenn hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn undanfarin tvö ár en byrjuðu þau tímabil mjög ólíkt. Valsliðið var í 2. sæti með 10 stig eftir fimm fyrstu leikina sumarið 2017. Valsliðið fór á mikið flug eftir tapið í fimmtu umferðinni í fyrra og vann þá næstu sex leiki sína. Það þýddi að eftir ellefu umferðina þá var Valur með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Það að Valsmenn séu nú þremur sigurleikjum frá toppsætinu þýðir að liðið þarf að fara að vinna leiki ætli liðið sér að vinna Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð. Næstu tveir andstæðingar eru samt ekki að auðveldari gerðinni heldur lið Breiðabliks og lið Stjörnunnar.Valsmenn eftir fimm umferðir 2019 9. sæti 4 stig í húsi 7 mörk skoruð -2 í markatölu (7-9)9 stig frá toppnumValsmenn eftir fimm umferðir 2018 8. sæti 6 stig í húsi 7 mörk skoruð 0 í markatölu (7-7)5 stig frá toppnum
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira