Mokveiði í Frostastaðavatni Karl Lúðvíksson skrifar 3. júní 2019 08:36 Það er mokveiði í Frostastaðavatni Mynd: Veiðivötn FB
Hálendið er að taka vel við sér og það var margt um manninn í þeim hálendisvötnum sem hafa opnað um helgina. Eitt af þeim sem óhætt er að kíkja í er Frostastaðavatn. Vatnið er um 160 km frá Reykjavík, stutt frá Landmannalaugum og er umhverfið þar afar fallegt þar sem vatnið er umlukt gígum og hrauni á allar hliðar. Það er mokveiði í vatninu, við skulum bara segja það eins og það er, en bleikjan er smá. Undirritaður fór með fjölskylduna í gær og afrakstur tveggja tíma veiði voru um það bil 50 bleikjur í poka. Af þessum 50 voru tvær um 1,5 pund en restin var smá, sumar mjög smáar en krökkunum er alveg sama. Ef það er eitthvað vatn sem er þess virði að fara í með börn er það þetta. Í þokkalegu veðri með flottholt og flugu er næsta víst að allir fá eitthvað. Bleikjan er að taka allt en mokveiðin í gær var á kúluhausa Peacock, Peter Ross og kúlukausa Killer. Mest veiðin er í austanverðu vatninu og við hraunið sunnanvert. Þrátt fyrir að bleikjan sé smá er hún afar góð á bragðið. Það sem ég hef gert undanfarin ár t.d. við Þingvallamurtu og smábleikju er að grilla hana eins og þjóðir Miðjarðarhafs gera við sardínur og treystu því að þú verður alveg háður því að borða smábleikju þegar þú hefur prófað að elda hana svona. Þú finnur uppskrift hér.
Mest lesið Ólíku saman að jafna í Dölunum Veiði "Umræðan er byggð á algjörum misskilningi" Veiði 15 punda urriði við opnun Veiðivatna Veiði Veiðin í Stóru Laxá að fara í gang Veiði Veiðivötn yfir 20.000 fiska múrinn Veiði Veiðin með Gunnari Bender - 8. þáttur Veiði Dularfullu flugur sumarsins 2011? Veiði Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Veiði Leirvogsá er komin í gang Veiði Fyrstu veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga Veiði