„Við Ágúst vorum nágrannar og æskuvinir hér í Reykjavík en Jónsi er úr Mosfellsbænum. Það er útbreiddur misskilningur að við séum allir úr Mosó.
„Fyrsta æfingin okkar, án þess að heita eitthvað sem hljómsveit, var undir verksmiðju við Skútuvoginn. Við Gústi byrjuðum þar og svo bættist Jónsi við.“

Byrjunin var sem sagt ekkert ágæt þó að titill þriðju plötu sveitarinnar gefi það í skyn. Áður en undirbúningur hennar hófst bættist Kjartan Sveinsson í hópinn. Eftir upptökurnar hætti Ágúst og í stað hans kom Orri Páll Dýrason. Platan kom út árið 1999 og í kvöld hefst hlustunarpartí í Gamla bíói klukkan 21 í tilefni tvítugsafmælis hennar. Það er opið almenningi meðan húsrúm leyfir.

„Eftir þessa uppákomu í Mosfellsbænum spiluðum við ekkert opinberlega í tvö til þrjú ár. Vorum bæði í vinnu og skóla en nýttum hverja mínútu sem við höfðum lausa í að hittast, æfa og semja. Okkur fannst það gaman og það var tilgangurinn með þessu öllu. En eftir útkomu Ágætis byrjunar byrjaði boltinn að rúlla. Reyndar spiluðum við ekkert um tíma heldur vorum á einhverjum lögfræðibuxum að semja við plötufyrirtæki erlendis og lesa samninga, frekar leiðinlegt,“ rifjar Georg upp. „En svo tók við þriggja ára stanslaust tónleikaferðalag. Við byrjuðum í Bretlandi og fórum víðar um Evrópu. Bandaríkin komu inn seinna – en þau komu og hættu ekkert.“

Þeir fylgdu sem sagt vel eftir þessari ágætis byrjun.
„Það var eiginlega ekki um neitt annað að ræða. Við höfðum strax sterka tilfinningu fyrir plötunni þegar við vorum að vinna hana og fólk sýndi henni líka mikinn áhuga. Þegar við byrjuðum að túra með hana voru liðin tvö ár frá því hún kom út á Íslandi, hún kom út árið 2000 í Bretlandi og 2001 í Bandaríkjunum. Þá vorum við dálítið farnir að spila önnur lög sem enduðu svo á næstu plötu. Fólki fannst það kannski svolítið skrítið en við vorum þá eiginlega komnir með leiða á sumum lögunum á Ágætis byrjun.“