Nýtt myndband frá ROKKY skotið á yfirgefnu hóteli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. júní 2019 10:08 ROKKY kemur fram á Secret Solstice. Vigdís Erla Guttormsdóttir
Tónlistarkonan ROKKY sendi á dögunum frá sér smáskífuna deux. Margrét Seema Takyar leikstýrði og sá um kvikmyndatöku tónlistarmyndbandsins við lagið sem kom út um helgina. Myndbandið var tekið upp í yfirgefnu hóteli í Reykjavík, gamla Oddsson. Hótelið skapar einstaka leikmynd í myndbandinu sem leikur stórt hlutverk í sögunni sem er sögð, að því er segir í tilkynningu. „Ég vissi að mig langaði til að gera vídeó með ROKKY um leið og ég heyrði lagið hennar MY LIPS. ROKKY er með eitthvað nýtt sound og þennan ‘it factor’. Það að fá svona tryllt lag upp í hendurnar og frelsi til að búa til nákvæmlega þann visual sem maður vill til að túlka lag og listamann er náttúrulega geggjað. Svo var heppnin okkur mjög hliðholl varðandi tökustað og -teymi,“ segir Margrét Seema. ROKKY stimplaði sig rækilega inn með smáskífu sinni, My Lips síðastliðið haust. Eftir að hafa böskað á götum Berlínarborgar í eitt ár og unnið samhliða því að elektrónískum popplögum valdi tískufyrirtækið Esprit lagið í auglýsingu. Í kjölfarið gaf hún smáskífuna út sjálf. Hún gefur út undir eigin merkjum á Íslandi en gerði útgáfusamning við New York fyrirtækið +1 Records sem sér um að gefa út og dreifa annars staðar í heiminum. ROKKY segir að það hafi verið ótrúlega gaman að vinna vídeóið með Margréti. „Hún er með frábæra nálgun og mikla hæfileika. Þetta var alveg æðislegt samstarf og ég gæti ekki verið ánægðari með útkomuna.“ ROKKY heldur tónleika í Berlín 14. júní og 20.júlí og kemur fram á Secret Solstice í Reykjavík 21. og 22. júní.
Secret Solstice Tengdar fréttir Frá böski yfir í danssmell Tónlistarkonan Rokky gefur út sitt fyrsta lag í dag og ætlar af því tilefni að snúa aftur til róta sinna með því að böska fyrir utan Dillon. 19. október 2018 10:30 Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fleiri fréttir „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira
Frá böski yfir í danssmell Tónlistarkonan Rokky gefur út sitt fyrsta lag í dag og ætlar af því tilefni að snúa aftur til róta sinna með því að böska fyrir utan Dillon. 19. október 2018 10:30