Linkind gagnvart fjárböðun Þorvaldur Gylfason skrifar 27. júní 2019 13:15 Róm – Ítalar hafa marga fjöruna sopið á langri leið. Landið varð fasismanum að bráð 1922 og beið ósigur ásamt Þjóðverjum og Japönum í síðari heimsstyrjöldinni. Þá tók við langt vaxtarskeið sem lyfti lífskjörum Ítala þar til f lokkakerfið sprakk af spillingu 1992-1994. Meira en helmingur þingmanna sætti ákæru fyrir lögbrot. Aðeins einn gamall þingf lokkur starfar enn undir óbreyttu nafni. Sumir hugguðu sig við að Seðlabanki Ítalíu hefði þó allavega hreinan skjöld. Svo fór þó að Antonio Fazio seðlabankastjóri 1993-2005 fékk 4ra ára fangelsisdóm 2011 fyrir spillingu auk hárrar fjársektar (1,5 milljónir evra). Silvio Berlusconi, þekktur gangster og súlustaðasöngvari, gekk á lagið. Hann var forsætisráðherra Ítalíu í níu ár af 18 frá 1994 til 2011. Lífskjör Ítala hafa frá aldamótum dregizt langt aftur úr kjörum Frakka og einkum Þjóðverja. Spilling hamlar lífskjörum og stöðugleika en hún hefur dvínað síðan Berlusconi fór frá völdum. Nú situr 66. ríkisstjórn Ítalíu frá 1946. Helmingi f leiri Ítalar treysta þinginu í Róm (27% skv. Eurobarometer) en Íslendingar treysta Alþingi (18% skv. Gallup). Lýðræði hrakaði á Ítalíu í stjórnartíð Berlusconis en lýðræðiseinkunnin sem Freedom House gefur ítölsku lýðræði hefur haldizt á bilinu 88 til 90 frá 2010 á móti lækkun í 86 í Bandaríkjunum nú og 94 á Íslandi. Ítalar lifa ári lengur að jafnaði en Íslendingar, eða 83 ár á móti 82 árum, og lengur en Kaninn (78 ár), en það er önnur saga. Stórþvottar Hefjum þessa sögu í Svíþjóð. Bill Browder heitir maður, höfundur bókarinnar Eftirlýstur sem hefur komið út á 25 tungumálum. Hann segir farir sínar ekki sléttar. Hann á von á að vera myrtur hvenær sem er því hann stendur á bak við efnahagsþvinganir Bandaríkjamanna og annarra gegn rússnesku mafíunni. Krafan um þvinganir var svar hans við því að lögfræðingur hans og vinur, Magnisky að nafni, lét lífið saklaus í rússnesku fangelsi fyrir nokkrum árum. Nú segir Browder að Svíar áræði ekki að rannsaka á eigin spýtur fjárböðunina í Swedbank sem sænska ríkissjónvarpið af hjúpaði í vetur leið heldur vilji þeir láta rannsóknina fara fram á vegum ESB eins og þeir séu bangnir við Rússa. E.t.v. skiptir það máli að Swedbank varð á sínum tíma til við samruna nokkurra sparisjóða sem voru tengdir Jafnaðarf lokknum sem stjórnar nú landinu. Göran Persson fv. forsætisráðherra er nýkjörinn formaður í bankaráði Swedbank. Vonandi er hann ekki á sömu leið og Gerhard Schröder fv. kanslari Þýzkalands sem hefur auðgazt á þjónustu við rússnesk orkufyrirtæki og Tony Blair fv. forsætisráðherra Bretlands sem hefur selt stjórnarherrum í Kasakstan ráðgjöf fyrir milljónir punda. Einn jafnaðarmaðurinn enn, Dominique Strauss-Kahn, fv. framkvæmdastjóri AGS, hefur selt hliðstæða ráðgjöf í Kongó. Þeir sem sölsa undir sig auðlindir almennings í Rússlandi, Kasakstan, Kongó og víðar þurfa á hjálp merkismanna að halda til að baða tvennt í senn: illa fengið fé og eigið orðspor. Fv. stjórnmálamenn eru sumir eftirsóttir til slíkra stórþvotta.Ný fjárböðunarvísitala Þrátt fyrir nýleg fjárböðunarhneyksli í Svíþjóð (Swedbank) og Danmörku (Danske Bank) eru bæði löndin líkt og Finnland og Noregur í hópi þeirra landa sem teljast ólíklegust til að baða illa fengið fé. Þetta er niðurstaða stofnunar í Basel í Sviss sem birtir slíkar vísitölur (e. Basel Anti-Money Laundering Index) reistar á upplýsingum um fjárböðun og viðnám stjórnvalda gegn henni. Ísland hefur færzt niður listann og fær nú lakari einkunn en Bretland, þekkt fjárböðunarbæli, en þó skárri en Ítalía. Einkunn Íslands (4,6) er einnig mun lakari en einkunnir annarra Norðurlanda (2,6 til 4,1). Skalinn teygir sig frá 2,6 (Finnland, gott) til 8,3 (Afganistan, ekki gott). Íslenzk stjórnvöld virðast ekki hafa tekið alvarlega áskoranir innan þings og utan um að láta rannsaka ábendingar um fjárböðun föllnu bankanna fyrir Rússa, m.a. í ljósi fullyrðinga rússneska auðjöfursins Borisar Berezovsky í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina áður en hann lézt við dularfullar kringumstæður í London. Seðlabanki Íslands vanrækti skyldu sína til að krefja menn um upprunavottorð fyrir gjaldeyrinn sem bankinn bauð til landsins á kostakjörum eftir hrun. Bankinn hefur nú sölsað undir sig Fjármálaeftirlitið með fulltingi Alþingis eins og til að bíta höfuðið af skömminni. Svik samábyrgðarinnar Þeir sem láta greipar sópa um sameignarauðlindir og geyma afraksturinn í skattaskjólum þurfa að gæta að því að þolinmæðin gagnvart þeim er víða á þrotum. Í hittiðfyrra fékk sonur Obiangs forseta Miðbaugs-Gíneu, sem er jafnframt varaforseti landsins, dóm í París fyrir fjársvik. Franskir dómstólar virðast nú líta efnahagsbrot hátt settra manna og vel tengdra alvarlegri augum en áður, eða eins og Bjarni Benediktsson skrifaði Pétri bróður sínum 1934: „Dagar linkindarinnar og svika samábyrgðarinnar hljóta að fara að styttast.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Peningaþvætti norrænna banka Þorvaldur Gylfason Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar