
Stjórn félags grunnskólakennara dregur lappirnar
Grunnskólakennarar hafa nú beðið, of lengi, eftir viðbrögðum stjórnar Félags grunnskólakennara um málið. Enginn fundur boðaður, málið ekki formlega rætt. Mörgum finnst afleitt að einstaklingur með refsidóm á bakinu sinni trúnaðarstörfum fyrir félagið. Hver er ásýnd og ímynd félags undir slíkum kringumstæðum?
Málinu var áfrýjað. Ef málið verður tekið fyrir í Landsrétti kemur niðurstaða frá æðri dómstól. Þar til sá dómur fellur er héraðsdómurinn í fullu gildi, það eru réttaráhrifin sem bíða sem og afplánun.
Mál af þessum toga hefur aldrei komið upp hjá Félagi grunnskólakennara að sögn fyrrverandi formanns Ólafs Loftssonar eða KÍ. Ólafur man eftir tilviki þar sem kennari sagði sig frá öllum trúnaðarstörfum áður en dómur féll. Gott siðgæði það.
Stjórn FG þarf að taka á málinu, þarf að sýna og sanna fyrir félagsmönnum að hún sé í stakk búin að taka á erfiðum málum. Hún þarf að leggja línurnar um svona málefni til framtíðar, úr því ekki var búið að því. Kennarar þurfa að vita hvar félagið stendur gagnvart brotum og dómsúrskurðum þegar sekt er sönnuð og refsing fylgir. Hvað skal gera á meðan áfrýjunarferli er í gangi o.s.frv.
Hvað veldur að stjórn dragi lappirnar skal ósagt látið. Höfundur er helst á því að góð vinátta milli hluta stjórnarmanna og formanns KFR hafi þar eitthvað að segja. Þegar mikil vinátta ríkir er skiljanlegt að erfitt sé að taka á máli sem þessu. Auk þess er hluti stjórnarmanna óhæfir til að taka afstöðu í málinu af sömu sökum. Tveir stjórnarmenn hafa tjáð sig opinberlega, annar segir dómara málsins slá sig til riddara með dómnum og hinn að dómurinn sé rangur sem gerir þá báða óhæfa í að fjalla um málið af hlutleysi. Þrátt fyrir að málið sé óþægilegt verður að taka á því félagsins vegna, hér verða hagsmunir einstaklinga að víkja fyrir hagsmunum heildarinnar.
Þöggun mála er aldrei af hinu góða, sáir óvissufræjum og tortryggni.
Höfundur er grunnskólakennari, trúnaðarmaður og varaformaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra.
Skoðun

Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar
Sveinn Ægir Birgisson skrifar

Meistaragráða í lífsreynslu
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Stjórnvöld, Óskar á heima hér!
Þóra Andrésdóttir skrifar

Dvel þú í draumahöll
Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar

Níðingsverk
Jón Daníelsson skrifar

Umhverfi, heilsa og skólamáltíðir
Stefán Jón Hafstein skrifar

Æji nei innflytjendur
Davíð Aron Routley skrifar

Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast!
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Samstaða, kjarkur og þor
Björn Snæbjörnsson skrifar

Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám
Darri Rafn Hólmarsson skrifar

Yfirfull fangelsi, brostið kerfi
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur
Árni B. Möller skrifar

Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga?
Erling Valur Ingason skrifar

5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra
Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar

Endurnýjun hugarfarsins
Bjarni Karlsson skrifar

Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi
Þórir Garðarsson skrifar

Góð vísa...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS
Vala Árnadóttir skrifar

Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu?
Einar Magnússon skrifar

Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt
Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar

Fristund.is fyrir öll - líka eldra fólk
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Ríkisstjórn sem skeytir engu
Diljá Matthíasardóttir skrifar

Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála
Anna Klara Georgsdóttir skrifar

Fólkið sem gleymdist í Grindavík
Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar

Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna
Erlingur Erlingsson skrifar

Á að sameina ÍSÍ og UMFÍ?
Ómar Stefánsson skrifar

Elsku ASÍ, bara… Nei
Sunna Arnardóttir skrifar

Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu
Hrönn Stefánsdóttir skrifar