Tónlistarmyndbandið gerist að stórum hluta í miðbæ og Vesturbæ Reykjavíkur á æskuslóðum Gauks. Textinn fjallar um æskuna og að fullorðnast, það að líta til baka á gömlu tímana með hlýhug og sjá hve margt hefur breyst.
Stórfyrirtækið COMPANY 3 í New York var fengið til þess að sjá um litaleiðréttingu á myndbandinu og var það það Joseph Bicknell sem hafði umsjón með því. Bicknell þessi er einstaklega hæfileikaríkur í sínu fagi og hefur litaleiðrétt tónlistarmyndbönd fyrir ASAP Rocky og auglýsingar fyrir Nike og Mercedes.

Sjoppuferðir og 70 mín
Leikstjórn var í höndum þeirra Álfheiðar Mörtu Kjartansdóttur og Magnúsar Andersen og fangar myndbandið texta lagsins vel. Það fjallar að miklu leyti um æskuna og vekur upp sterka nostalgíu tilfinningu hjá áhorfandanum, sérstaklega þeim sem er af sömu kynslóð og Gaukur.Hátt í tuttugu ungir krakkar fóru með hlutverk í myndbandinu stóðu sig ótrúlega vel að sögn leikstjóra. Þar má sjá hversdagsleikann sem flestir kannast við; íþróttaæfingar, sjoppuferðir og 70 mínútur í túbusjónvarpi.
Myndbandið er aðgengilegt á YouTube og þá er það einnig komið á Spotify.