Frændur hanna föt og mála skó Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar 11. júlí 2019 09:30 Frændurnir Aron Kristinn Antonsson og Smári Stefánsson ferðast með hönnun sína á sérmerktum bíl.
Frændurnir Smári Stefánsson og Aron Kristinn Antonsson stofnuðu nýlega fatamerkið YEYO Clothing. Þeir selja eigin hönnun. Bæði föt og skó. Þetta er glænýtt, við byrjuðum bara í júní og vorum þá með markað á Secret Solstice,“ segir Smári. Hann hannaði fatalínuna sem eins og stendur er tvær flíkur, svört velúrskyrta og motocross-treyja. Eftir sumarið er svo von á úlpu, flíspeysu og jakka. „Ég hef aldrei hannað áður, þetta var bara áhugamál. Ég hélt ég gæti þetta og prófaði bara,“ segir Smári um ástæðu þess að hann fór út í fatahönnun. „Ég talaði svo við frænda minn, þar sem hann er mjög myndarlegur og bað hann um að vera módel. Mig vantaði myndir af einhverjum í fötunum,“ segir Smári. Frændinn, Aron Kristinn, ákvað að slá til og vera með í fatalínunni en hann hafði verið að mála skó með sérstakri leðurmálningu. „Ég var búinn að vera að fylgja alls konar fólki á samfélagsmiðlum sem var að mála skó og mig langaði að prófa. Svo bara elskaði ég að gera þetta,“ segir Aron. Frændurnir voru með bás á Sectret Solstice þar sem þeir seldu fötin og skóna. „Fólk gat komið með eigin skó sem ég málaði eftir óskum fólks eða ég kom með hugmynd fyrir fólkið sjálfur. En svo var ég líka að selja tilbúna skó. Ég er mest að mála leðurskó en fólk var líka að koma með Vans skó til mín, sem eru úr öðruvísi efni. Þá þarf að þynna málninguna. Það er alls konar tækni við það eftir því hvernig efni þú ert að vinna með,“ segir Aron. Smári segir að þeir séu að hugsa um að vera með pop-up búð í Reykjavík og selja fötin þar. Þeir eru með bíl sem þeir myndu þá leggja á mismunandi stöðum og auglýsa viðburðinn á samfélagsmiðlum. „Þetta er svona hugmynd en við eigum eftir að skipuleggja þetta betur,“ segir hann og bætir við að þeir hafi selt ágætlega af fötum og skóm á Secret Solstice þar sem þeir voru staddir með bílinn. „Fólk hefur líka verið að hafa samband við mig eftir Solstice og biðja mig að mála skó og ég hef verið að taka inn skó og mála þá. Ef við setjum upp svona pop-up búð þá myndi ég vera með málninguna mína þar og fólk getur mætt með skóna en ég verð líka með tilbúna skó.“ Hægt er að skoða fatalínuna á yeyoclothing.com en vefsíðan er í vinnslu. Einnig er hægt að fylgja YEYO á Facebook og Instagram.Fatalínan samanstendur af svartri velúrskyrtu og motocross-treyju. Vetrarföt eru væntanleg.Aron málar skó með sérstakri leðurmálningu.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Tíska og hönnun Mest lesið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Stálu senunni í París Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Katrín og Inga Rut í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Það allra heitasta í sumarförðuninni Sjá meira