Bara eitt lið í Pepsi Max með lélegri markatölu en FH-liðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2019 15:00 Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, hefur þurft að bíða í 200 mínútur eftir marki. Vísir/Daníel
Tvö hundruð mínútur án marks og tveir stigalausir leikir í röð. Það er þungskýjað yfir Kaplakrika þessa dagana. FH-ingar hafa aðeins unnið tvo af síðustu átta leikjum sínum í Pepsi Max deild karla og eru stigalausir og markalausir í síðustu tveimur leikjum. Markatala FH-inga er nú þrjú mörk í mínus eftir að hafa tapað 2-0 á móti HK og 1-0 á móti KA. Það eru bara Eyjamenn sem eru með lakari markatölu en Hafnarfjarðaliðið. Markatala ÍBV er -23. FH-liðið er með jafnslaka markatölu og lið KA og Víkingur. Víkingar gætu dottið neðar tapi þeir á móti Breiðabliki í kvöld. FH-ingar hafa tapað tveimur leikjum í röð og það án þess að skora mark. Síðasta mark liðsins kom í sigurleik í Vestmannaeyjum 13. júlí síðastliðinn. FH-liðið er því búið að spila í 200 mínútur án þess að skora mark í Pepsi Max deildinni. 20 mínútur á mói ÍBV, 90 mínútur á móti HK og 90 mínútur á móti KA. Allir þessir leikir hafa reyndar verið á útivelli. Síðustu tvö mörk FH-liðsins skoraði Steven Lennon og komu þau bæði á móti lélegasta liði deildarinnar. Reyndar hafa tveir síðustu sigurleikir liðsins og þeir eru frá 20. maí komið á móti liðunum sem sitja nú í fallsæti deildarinnar eða ÍBV og Víkingur. FH-ingar hafa alls náð í 8 stig af 24 mögulegum út úr síðustu átta leikjum sínum og það eru bara KA (7), ÍA (6) og ÍBV (3) sem hafa fengið færri stig á þessum sama tíma. Markatala FH-liðsins í þessum átta leikjum eru fimm mörk í mínus eða 7-12. Fyrir vikið er FH-liðið aðeins í sjöunda sæti og gæti meira að segja dottið niður í það áttunda takist HK að vinna Stjörnuna í Kórnum í kvöld. Vinni Víkingar ennfremur Blika þá verða aðeins þrjú stig niður í fallsæti.Lélegasta markatalan í Pepsi Max deild karla eftir leikina 28. júlí:-23 ÍBV (11-34)-3 FH (18-21) Víkingur (18-21) KA (19-22)-2 Fylkir (23-25)-1 Grindavík (10-11)+1 HK (17-16)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti Sara tekur ekki þátt í Open og missir því af heimsleikunum Sport Fá bætur eftir að hafa villst vegna forystubílsins Sport Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Handbolti Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Enski boltinn Fleiri fréttir „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Sjá meira