Tufa: Neyðumst til að breyta leikkerfinu því við höfum ekki menn í allar stöður Smári Jökull Jónsson á Mustad-vellinum skrifar 18. ágúst 2019 19:18 Túfa segir Grindvíkinga hvergi nærri hætta. vísir/bára „
Ég er sáttur með stigið miðað við að stóran hluta leiksins erum við undir, að elta og að reyna að jafna. Við sýnum karakter og uppskárum markið eftir baráttuna sem við lögðum í þetta“, sagði Srdjan Tufegdzig þjálfari Grindavíkur eftir 1-1 jafnteflið við HK í 17.umferð Pepsi Max-deildarinnar í knattspyrnu í dag. Grindvíkingar hafa aðeins unnið einn sigur í síðustu tólf leikjum og eru í fallsæti deildarinnar. „Að sjálfsögðu lögðum við upp með að ná í þrjú stig. Það er búið að vera sagan okkar í sumar og í undanförnum leikjum að við fáum mark á okkur upp úr engu. Innkast hátt uppi á velli og endar svo með víti og marki. Við þurfum að halda áfram og hafa trú á því sem við erum að gera. Ég og þessir drengir ætlum að berjast fram á síðustu stundu.“ Það voru aðeins sex leikmenn á bekk Grindavíkur í dag og augljóst að þeir eru í vandræðum þegar menn eru frá vegna meiðsla eða leikbanna. „Það er smá bras á okkur. Tufa (Vladimir Tufegdzig) er meiddur og Alexander Veigar líka. Tufa er búinn að vera meiddur í tvær vikur og verður það örugglega í tvær vikur í viðbót. Ég vona að Alexander Veigar komi fljótlega inn. Þetta eru ekki mikil meiðsli en hefur áhrif á okkur. Menn sem eru klárir og heilir þurfa bara að halda áfram að berjast,“ bætti Tufa við en hann prófaði þriggja miðvarða leikkerfi undir lokin í dag líkt og gegn Fylki í síðustu umferð. „Í raun höfum við neyðst til þess að gera breytingar á leikkerfi í síðustu tveimur leikjum því við höfum ekki menn í allar stöður. Það er ekki eitthvað sem er planað fyrir næsta leik en núna og gegn Fylki höfum við reynt að spila 4-4-2, spila 4-3-3 eða 3-5-2 og erum bara að reyna að ná því besta miðað við það sem við höfum núna.“ „Mér finnst strákarnir gefa allt sitt í þetta og vera til fyrirmyndar. Við ætlum að halda áfram.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira