Draumadagur veiðimanns við Ytri Rangá Karl Lúðvíksson skrifar 17. ágúst 2019 10:00 104 sm laxinn sem þessi erlendi veiðimaður veiddi í gær. Mynd: Bjarki Már Jóhannsson
Hann tók líka þennan 90 sm sjóbirting.Mynd: Bjarki Már Jóhannsson Það er hægt að eiga upplifanir af ýmsu tagi við veiðar og í gær er óhætt að segja að veiðimaður hafi átt sannkallaðan draumadag við Ytri Rangá. Við heyrðum í Bjarka Má Jóhannssyni leiðsögumanni við Ytri Rangá í gærkvöldi og sagði hann okkur ansi magnaða sögu af degi veiðimanns í gær. Þessi ágæti erlendi veiðimaður Var þá nýbúinn að landa 90 sm sjóbirting, 97 sm laxi og var rétt áður en við heyrðum í Bjarka nýbýinn að sleppa aftur 104 sm laxi sem hann veiddi á Rangárflúðum. Sá lét hafa ansi mikið fyrir sér og það var ekki fyrr en 200 metrum neðar í Eystri kvíslinni neðan við Rangárflúðir sem tókst að koma skepnunni í háfinn. Veiðitölurnar í Rangánum eru kannski mun minni en væntingar stóðu til en það gleðilega sem er að gerast er að það eru að veiðast margir stórlaxar og fleiri hafa verið að sýna sig. Þeir sem eiga daga þarna framundan í sumar eru kannski ekkert að fara mokveiða en það er þá bara að setja sig í stellingar fyrir því að setja í einn svona stórlax og svoleiðis átök geta sannarlega fullkomnað veiðitúrinn. Þess má geta að samtalinu við Bjarka var slitið að hans hálfu því hann þurfti að stökkva til og háfa annan laax sem þessi veiðimaður var að eiga við. Sannarlega góður dagur.
Mest lesið 186 laxar á land á einni vakt í Ytri Rangá Veiði Veiðin í Norðurá loks kominn yfir 900 laxa Veiði Eystri Rangá að fyllast af laxi Veiði Ytri Rangá aflahæst laxveiðiánna Veiði 106 sm lax úr Haukadalsá Veiði Stangveiði skilar þremur milljörðum í Borgarbyggð Veiði Langskeggur er málið Veiði Góðar gangur í Breiðdalsá Veiði Ljósmyndakeppni meðal skotveiðimanna Veiði Rétt um 30 löxum landað í Svalbarðsá í morgun Veiði