50 laxar á 3 dögum úr Skjálfanda Karl Lúðvíksson skrifar 15. ágúst 2019 11:00 Sigurður Gestsson með flottan lax úr Skjálfandafljóti. Mynd: Iceland Outfitters
Það er gaman á þessu erfiða veiðisumri að geta komið góðum veiðifréttum á framfæri og vonandi að með rigningartíð sem haustið vonandi færir okkur verði meira um slíkar fréttir. Við fengum meðal annars góðar fréttir úr Skjálfandafljóti en það veiðisvæði er í höndum Iceland Outfitters. Þetta er mjög skemmtilegt en að sama skapi krefjandi veiðisvæði sem er yfirleitt mjög gjöfult síðsumars og það virðist sýna sig heldur betur á veiði síðustu daga en það hafa alls komið 50 laxar á land sunnudag til þriðjudags og í gær var talan komin í 17 laxa yfir daginn en samt voru tölur ekki komnar af öllum svæðum. Heildarveiðin í Skjálfandafljóti var komin í 240 laxa í gærkvöldi en heildarveiðin í fyrra var 250 laxar svo það er ljóst að áinn á eftir að toppa heildarveiðina í fyrra og það líklega í þessari viku. Þetta er flott veiði á aðeins sex stangir og fyrir utan lax er að finna mikinn silung líka bæði sjógengin og staðbundinn.
Mest lesið Mikið rætt um verðhækkanir veiðileyfa Veiði Veiðikeppnin litla Veiði Ágætis kropp af urriða í þjóðgarðinum Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði Laxá í Dölum enn ein áin til að opna með glæsibrag Veiði Litlar líkur á vatnsleysi á komandi sumri? Veiði 99 sm urriði í vorveiðinni í Ytri Rangá Veiði Líflegt í vötnunum Veiði Spá góðu smálaxaári Veiði Ein best gleymda áin við bæjarmörkin Veiði