Að vera fyrri til Svavar Guðmundsson skrifar 23. ágúst 2019 13:32 „Heilsaðu öllum heima, þeim sem heldurðu að vilji muna eftir mér.“ Þetta er þekkt hending úr frægu viðlagi sem við flest þekkjum og lýsir hlýhug og vináttu. Fólk heilsast og kveður að ólíkum sið eða venjum. Hvernig sem fólk heilsast, þá felur sú athöfn í sér einhverskonar virðingu. Í athöfninni að heilsa felst mikilvægi virðingar í samskiptum; öll viljum við vera virt og vera auðsýnd tilhlýðileg virðing. Að heilsast og vera heilsað er ein birtingamynd örlítillar væntumþykju og virðingavottun. Við höfum flest öll orðið fyrir vonbrigðum þegar okkur fannst að okkur hefði átt að vera heilsað af einhverjum sem okkur fannst skipta máli, en viðkomandi heilsaði ekki. Eitt af því sem ég hef upplifað undanfarin ár sem lögblindur einstaklingur er hve margir nota sjónskerðingu mína til þess eins að sleppa því að heilsa mér. Svo eru aðrir sem bera algjörlega af og kynna sig af fyrra bragði með sínu eigin nafni þegar þeir ávarpa mann, þetta er oftast fólk með yfirburða samskiptagreind en því miður upplifi ég það sem minnihlutahóp. Það er eins og margt fólk álíti blindan einstakling öðruvísi og að það þurfi eitthvað sérstakt umræðuefni þar sem maður er lögblindur til þess að nálgast mann. Við erum ekkert öðruvísi; við heyrum, hugsum, tölum og skynjum, en við sjáum mjög illa eða ekki neitt. Það er því óþarfi að vera vandræðalegur eða feiminn því síst af öllu viljum við láta vorkenna okkur. Ég hef verið í skírnar-, afmælis- og útskriftarveislum, í raun öllum tegundum af fagnaði. Ég er ekki í þessum veislum af því ég er ókunnugur fólkinu, en ég hef oft spurt einhvern nærkominn hvort hinn og þessi sé ekki eða hafi verið í veislunni? Jú, jú, allir voru þar en ég varð þess ekki áskynja því ég sé ekki fólkið og finnst því oft súrt í broti að hafa ekki verið heilsað af „vini“ eða ættingja. Rúmu hálfu ári eftir að ég varð skyndilega lögblindur fór ég t.a.m. í skírnarveislu þar sem um hundrað manns voru mættir, ég sat einn á borði sem mér hafði verið fylgt að og var með áberandi sólgleraugu þar sem ég þoli illa birtu. Mér fannst skrýtið að enginn skyldi setjast við borðið mitt, blinda er ekki smitandi og ég var ekki með farsótt. Ég held að 3-5 manneskjur hafi heilsað mér þrátt fyrir að ég hafi þekkt og vitað um mætingu helmings veislugesta. Mér leið hræðilega illa í þessari veislu, að sjá ekki þá sem ég þekkti og að vera ekki heilsað af þeim. Ég fór bitur og klökkur úr veislunni, laug því til að mér væri illt í maganum, pantaði leigubíl og vildi engan við tala, fór bara heim til mín og lagðist upp í sófa. Í dag er ég orðin vanari þessu, þ.e að vera einungis heilsað af broti minnihlutans, sérstaklega þegar fólkið með góðu samskiptagreindina kemst ekki til veislunnar. Það þarf hugrekki til að vera manneskja. Þessu er oft algerlega öfugt farið í veislum þar sem áfengi er í boði - þá gefa sig flestir á tal við mann því hugrekkið var drukkið í sig af lífsins lyst. Það er ekki gott fyrir sálina að vera hornreka í mannfagnaði. Maður upplifir sig afskiptan, á erfitt með að bæta úr því eða vera fyrri til að heilsa vegna blindunnar. Það getur oft fylgt sjónmissi einum og sér mikill einmannaleiki og því bætir það gráu ofan á svart að vera ekki heilsað og að vera sniðgenginn og hunsaður. Við sem blind eða lögblind erum, einkennum okkur langoftast með hvíta stafnum eða barmmerki. Við skynjum umhverfið á okkar hátt og við getum hugsað, talað og heyrt og svo miklu meir en það. Skilningsvitin okkar blinda/lögblinda fólksins eru í toppformi enda í toppæfingu, ólíkt alsjáandi fólkinu sem er sífellt að týna bíllyklunum sínum eða öðrum hlutum, blindir og sjónskerti týna barasta ekki hlutum! Mér finnst það einnig oft æði sérstakt að þegar ég er með annarri manneskju að hún er spurð fyrir mína hönd, t.d. ef ég er á kaffihúsi, hvernig kaffi vill hann, o.s.frv. Það er ábending til alsjáandi að spyrja blinda fólkið hvað það vill, ekki spyrja aðra þeirrar spurningar - það er tilfinningalegt taktleysi. Ímyndaðu þér að flestir samferðamenn sem framhjá þér fara myndu aldrei heilsa þér; hvorki heilsa né kasta á þig kveðju, fyrir þig sem ert alsjáandi myndi það nú reynast frekar einmannalegt og tómlegt líf. Þess vegna skiptir það okkur blinda/lögblinda fólkið gríðarmiklu máli að vera heilsað og við okkur talað, annars líður okkur eins og verið sé að hunsa okkur. Verum hugrökk. Gott og nauðsynlegt er að segja til nafns þegar blindum/lögblindum er heilsað og auðvitað af fyrra bragði. Sæll Svavar, þetta er Siggi frá Þúfu. Sæll Svavar, Þetta er hún Guðrún frá Hóli. Verum fyrri til og heilsum hvort öðru.Höfundur er sjávarútvegsfræðingur.Grein þessi var send inn í ritkeppni á vegum Blindrafélagsins í tilefni 80. ára afmæli þess þann 19. ágúst 2019. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagsmál Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar