Hlynur Pálmason, sem er bæði handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar, vakti mikla athygli í Danmörku fyrir mynd sína Vetrarbræður á síðasta ári. Sú frumraun Hlyns vann til níu verðlauna á dönsku kvikmyndaverðlaunahátíðinni en þrátt fyrir þessi frábæru viðbrögð ytra ákvað Hlynur að koma heim eftir 12 ára dvöl í Danmörku.
Hlynur flutti ásamt fjölskyldu sinni á æskustöðvarnar á Höfn í Hornafirði þar sem fjölskyldan hefur komið sér fyrir í gamalli spennistöð, Stekkakletti. Í kvikmyndinni er það einmitt húsið sem aðalsögupersónan er að gera upp.

Sorg og þráhyggja
Kvikmyndin fjallar um Ingimund lögreglustjóra sem Ingvar E. Sigurðsson túlkar af sinni alkunnu snilld. Stjórinn hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Ingimundur einbeitir sér í sorginni að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu allt þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu hans.Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitna einnig á þeim sem standa honum næst.
Í Háskólabíó með ömmu og afa
Kvikmyndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Jafnframt hefur hún verið valin sem framlag Íslands til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs sem afhent verða í október. Hlynur segir það hafa verið sérstaka tilfinningu að sýna myndina loks á Íslandi eftir að hafa fylgt henni fyrst erlendis.
Dóttirin í veigamiklu hlutverki
Ellefu ára gömul dóttir Hlyns, Ída Mekkín, fer með veigamikið hlutverk í myndinni. „Hún leikur Sölku, barnabarn Ingimundar og demantinn í augum hans. Þeirra samband er eitt það mikilvægasta í myndinni. Á milli þeirra eru góðu stundirnar.“Hlynur segir það hafa legið beinast við að fá dótturina til að túlka Sölku enda séu skilin á milli vinnu og fjölskyldu ekki mjög afgerandi í hans tilfelli. „Ég hef alltaf unnið mjög náið með fjölskyldu og vinum og dóttir mín hefur bardúsað heilmikið með mér; setið fyrir á myndum og leikið svo þetta var mjög náttúrulegt fyrir hana. Henni finnst þetta gaman og hún nýtur sín í kreatívu samstarfi hópa.“

Fleiri klukkustundir í sólarhringnum í Hornafirði
Fram undan eru svo fleiri sýningar og vinnuferðir til útlanda en hugur Hlyns stefnir augljóslega heim á Hornafjörð þar sem fjölskyldan hefur komið sér fyrir en bæði Hlynur og Hildur eiginkona hans ólust þar upp. „Við búum aðeins fyrir utan Höfn þar sem við erum með hænur og dóttir okkar er virk í hestamennskunni. Þar verður mér mikið úr verki enda virðast fleiri klukkustundir í sólarhringnum þar. Nú þegar við erum komin með þrjú börn finnum við fyrir því hversu mikið frelsið er og tempóið allt annað.“Næstu verkefni Hlyns eru jafnframt tengd Austfjörðum, bæði hefur hann gert samning við sveitarfélagið um að gera bústað fyrir lista- og kvikmyndagerðarfólk í gömlu spennistöðinni og hefjast handa við næstu kvikmynd en innblásturinn að henni fékk hann úr ljóði Matthíasar Jochumssonar; Volaða land.
