ÞEL fyrsta verk Katrínar fyrir Íslenska dansflokkinn Stefán Árni Pálsson skrifar 12. september 2019 12:00 Katrín Gunnarsdóttir er danshöfundur verksins.
ÞEL eftir grímuverðlaunahafann Katrínu Gunnarsdóttur er fyrsta frumsýning Íslenska dansflokksins á sýningarárinu 2019-2020 og jafnframt fyrsta frumsýning ársins í Borgarleikhúsinu. Katrín hefur getið sér gott orð sem danshöfundur og er ÞEL fyrsta verkið sem hún semur fyrir Íslenska dansflokkinn. Katrín lýsir verkinu sem lífveru og líkama hóps sem fléttast saman, hlustar og leitar að samstöðu í gegnum endurteknar umfaðmandi athafnir í hreyfingum og söng, sem skapar þannig samhug og nánd sín á milli. Eva Signý Berger mun sjá um hönnun á búningum og sviðsmynd en þetta er fimmta sýningin sem þær tvær vinna saman að. ÞEL verður frumsýnt 20. september á Nýja sviði Borgarleikhússins. ÞEL er lífvera og líkami hóps. Hóps sem fléttast saman, hlustar og leitar að samstöðu í gegnum endurteknar umfaðmandi athafnir í hreyfingum og söng og skapa þannig samhug og nánd sín á milli. ÞEL er lífrænt mjúkt og brothætt handverk, líkamlegt landslag. ÞEL er nýtt íslenskt verk eftir grímuverðlaunahafann Katrínu Gunnarsdóttur. Katrín Gunnarsdóttir er íslenskum dansunnendum vel kunn enda hefur hún svo sannarlega lagt sitt af mörkum í þróun samtímadans á Íslandi undafarin ár. Katrín hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímuverðlaunanna og þrívegis hlotið þau; sem Danshöfundur ársins 2018 fyrir Crescendo, Dansari ársins 2017 fyrir Shades of History og Danshöfundur ársins 2013 ásamt Melkorku Sigríði Magnúsdóttur fyrir Coming Up. Katrín hefur einnig tvívegis verið tilnefnd til Menningarverðlauna DV (2015 og 2016) og tilnefnd í TANZ magazine (2017) ásamt Marmarabörnum fyrir sýninguna Moving Mountains. Verk Katrínar hafa verið sýnd víða um Evrópu ásamt því að hún hefur verið danshöfundur í sýningum hjá Þjóðleikhúsinu, Theatre Republique í Danmörku, Íslensku Óperunni og Toneelgroep í Amsterdam.Danshöfundur: Katrín GunnarsdóttirBúningar og sviðsmynd: Eva Signý BergerTónlist: Baldvin Þór MagnússonLýsing: Kjartan ÞórissonDramatúrgísk aðstoð: Alexander Roberts og Ásgerður G. GunnarsdóttirDansarar: Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Erna Gunnarsdóttir, Ernesto Camilo Aldazabal Valdes, Halla Þórðardóttir, Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Shota Inoue og Unu Björg Bjarnadóttur. Hér að neðan má sjá myndband frá Íslenska dansflokknum þar sem sjá má brot úr sýningunni.
Dans Mest lesið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Gagnrýni Aron segist hættur í ClubDub Lífið Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Lífið Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Lífið Morten Harket greinist með Parkinson Lífið Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Lífið Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Menning Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið Það allra heitasta í sumarförðuninni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira