Epstein sakaður um kynferðisbrot gegn konum í Frakklandi Kjartan Kjartansson skrifar 11. september 2019 11:47 Epstein árið 2013. Hann hengdi sig í fangelsi á Manhattan í ágúst. Vísir/AP
Þrjár konu hafa stigið fram og sakað Jeffrey Epstein, bandaríska auðmanninn og barnaníðinginn, um kynferðisbrot í Frakklandi. Saksóknari í París sem rannsakar möguleg brot Epstein þar í landi greindi frá þessu í dag. Skýrslur voru teknar af konunum undanfarnar vikur en saksóknarar auglýsa enn eftir fleiri mögulegum fórnarlömbum Epstein í Frakklandi eða á frönskum yfirráðasvæðum, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Epstein var handtekinn í júlí, sakaður um mansal á ungum stúlkum í New York og Flórída. Hann neitaði sök en svipti sig svo lífi í fangaklefa á Manhattan 10. ágúst. Fjöldi kvenna hefur sakað hann um að hafa brotið á sér í Bandaríkjunum. Hann er meðal annars sagður hafa greitt unglingsstúlkum sem hann misnotaði til þess að koma sér í kynni við fleiri ungar stúlkur. AP-fréttastofan segir að saksóknarar í Frakklandi beini sjónum sínum meðal annars að Jean-Luc Brunel, frönskum tískuumboðsmanni og félaga Epstein, sem flaug stundum í einkaflugvél Epstein og heimsótti hann í fangelsi á Flórída þegar hann var sakfelldur fyrir vægari brot þar árið 2008. Ein kvennanna sem sakar Epstein um misnotkun þegar hún var táningur segir að að Brunel og fleiri menn hafi einnig misnotað hana, þar á meðal Andrés prins, bróðir Karls Bretaprins.
Frakkland Mál Jeffrey Epstein Mál Andrésar prins Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Sjá meira