Fengu íbúa heillar götu í lið með sér í stríðinu gegn plasti Stöð 2 kynnir 20. september 2019 09:57
Stöð 2 sýnir á sunnudaginn þáttinn War on Plastic with Hugh and Anita. Um er að ræða fyrsta þátt af þremur en hann verður sýndur klukkan 20:25 eða strax á eftir fyrsta þættinum í þriðju seríunni af Leitinni að upprunanum með Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur. Óheyrilega mikið af plastúrgangi fer í hafið okkar á hverri mínútu. Þættir eins og Blue Planet og Drowning in Plastic hafa veitt okkur innsýn inn í þessa mengun og þau hrikalegu áhrif sem hún hefur á lífríki plánetunnar okkar. Hugh og Anita kanna hvaðan allt þetta plastmagn kemur og hvað hvert eitt og einasta okkar getur gert til að snúa þessari ógnvænlegu þróun við. Þau skora á fyrirtæki að sýna ábyrgð með því að draga úr plasti í vörum sínum og spyrja stjórnvöld hvað þau séu að gera til þess að efla endurvinnslu og minnka plastframleiðslu. Að auki skora þau á heila götu í Bristol að draga úr heimilisplastneyslu á fjórum mánuðum í þeirri viðleitni að leiða íbúa í ljós um það sé í raun ekki eins erfitt og í fyrstu sýnist að leggja sitt af mörkum til að sporna gegn þessum náttúruhamförum af mannavöldum. Þriðjungur plastumbúða sem fellur til á heimilum í Bretlandi kemur frá tíu stærstu verslunarkeðjunum þar í landi, rúmlega 800.000 tonn á ári. Bretar kaupa átta milljónir vatnsflaskna á ári en það tekur hverja flösku um 450 ár að brotna niður í náttúrunni. Anita og Hugh spyrja af hverju við þurfum að kaupa allt þetta vatn í plasti þegar um helmingur alls plasts sem framleitt er í Bretlandi endar í rangri ruslafötu. Flokkun er ábótavant og fræðsla er nauðsynleg til þess að upplýsa samfélagið um það hvernig flokka skuli í tunnurnar. Hugh og Anita eru staðráðin í að benda á það sem betur má fara í þessum málum og segja plastinu stríð á hendur. Stöð 2 sýndi áður heimildarþættina Hugh‘s War on Waste sem slógu í gegn hjá áhorfendum.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Laufey „splittaði G-inu“ á tónleikum í Dublin Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Salurinn fylltist í þrígang á fimmtíu ára afmælistónleikum Lífið Fleiri fréttir Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira