„Það er RIFF mikill heiður að taka á móti Claire Denis og kynna hana fyrir íslenskum áhorfendum og bransafólki Stefnt er að Claire haldi meistaraspjall en það hefur verið mikilvægur hluti dagskrár undanfarin ár. Þá gefst fólki tækifæri á að tala við hana um hvað það er sem drífur hana áfram og fá innsýn inn í gerð kvikmynda hennar,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF.
„Claire Denis er ein þekktasta kvikmyndagerðarkona í heiminum í dag og ein af skærustu stjörnum franskrar kvikmyndagerðar. Hún er einna þekktust fyrir kvikmynd sína Beau Travailsem talin er ein besta kvikmynd tíunda áratugarins. Síðasta mynd hennar High Life kom út í fyrra og skartaði þar stjörnum á borð við Robert Pattinson og Juliette Binoche; fékk hún ljómandi viðtökur um allan heim,“ segir í tilkynningu frá RIFF.
