Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hönnunarmiðstöð en verðlaunin voru afhent í Iðnó í gærkvöldi. Var það Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sem veitti Genki Instruments aðalverðlaun kvöldsins. Var það fyrir Wave-hringinn sem hannaður er til að auka upplifun og túlkun í tónlist. Er hringurinn sagður framsækin tæknilausn sem auki möguleika tónlistamanna til sköpunar á þægilegan og notendavænan hátt.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars. „Genki Instruments er framsækið og hönnunardrifið tónlistartæknifyrirtæki þar sem hönnun, tækni, verkfræði, og tónlist renna saman í eitt. Wave er einstakt dæmi um framsækna hugmynd frumkvöðlafyrirtækis þar sem rannsókn, þróun og prófanir í gegnum allt hönnunarferlið skilar algerlega nýrri upplifun til notenda sem hefur hlotið lof víða um heim.“
Teymið á bakvið Genki er skipað þeim Ólafi Bogasyni, Haraldi Þóri Hugosyni, Jóni Helga Hólmgeirssyni, Þorleifi Gunnar Gíslasyni og Daníel Grétarssyni.
Viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu
Omnom súkkulaðigerð hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2019, en Omnom framleiðir handgert súkkulaði, stofnuð af Kjartani Gíslasyni og Óskari Þórðarsyni árið 2013. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars:
Heiðursverðlaun veitt í fyrsta sinn
Í fyrsta sinn voru veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands sem Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt hlaut. Í umsögn dómnefndar um Manfreð segir meðal annars:„Hönnun og byggingar Manfreðs Vilhjálmssonar eru meðal bestu dæma um góðan arkitektúr á Íslandi en verkin bera vitni um vandaða hönnun og arkitektúr þar sem efni, form og samhengi skapa eina órjúfanlega heild. Manfreð Vilhjálmsson arkitekt hefur markað djúp spor í sögu arkitektúrs á Íslandi. Einstakur starfsferill sem spannar yfir 60 ár endurspeglar áræðni í fjölbreyttum verkefnum og metnaðarfulla listræna og faglega sýn. Eftir Manfreð liggur fjöldi tímamótaverka sem bera vott um einstaka hæfni til að takast á við margvíslegar áskoranir staðhátta og uppbyggingar í ungu samfélagi.“

Hönnunarverðlaun Íslands hafa verið veitt árlega frá 2014. Í dómnefnd verðlaunanna 2019 sátu þau Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, formaður dómnefndar og hönnuður, Hörður Lárusson, grafískur hönnuður, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, Sigrún Halla Unnarsdóttir, fatahönnuður, Daniel Golling sýningarstjóri sænska arkitektúrsafnsins og Edda Björk Ragnarsdóttir frá Samtökum Iðnaðarins.
Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Ísland og með stuðningi frá Landsvirkjun og Samtökum Iðnaðarins.