Blokkin á heimsenda fékk verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. maí 2020 14:04 Verðlaunahafarnir á tröppunum við Höfða. Ólafur Daði Eggertsson
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2020 fyrir handrit sitt að bókinni Blokkin á heimsenda. Bókin kemur út í dag, þriðjudaginn 19. maí. Reykjavíkurborg veitir nú Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í annað sinn. Þau eru veitt árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og er ætlað að hvetja til metnaðarfullra skrifa fyrir börn og ungmenni og halda á lofti merkjum eins okkar ástsælasta barnabókahöfundar. Verðlaunaféð er ein milljón krónur. Hátt á fimmta tug handrita bárust í samkeppnina í ár og var dómnefndin sammála um að handrit þeirra Arndísar Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnar Bjarndóttur, Blokkin á heimsenda, skyldi hljóta verðlaunin að þessu sinni. Dómnefndina skipuðu þau Geir Finnsson, sem var formaður, Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Heiða Rúnarsdóttir. Á lokametrunum fengu þau tvo nemendur úr 6. bekk Háteigsskóla sér til liðsinnis og þakkar Reykjavíkurborg þeim fyrir þeirra mikilvæga framlag. Ástandið í samfélaginu vegna Covid-19 setti nokkuð strik í reikninginn við verðlaunaafhendinguna sem var seinna í ár en ráð var fyrir gert að því er segir í tilkynningu. Borgarstjóri afhenti verðlaunin í Höfða og var brugðið á það ráð að kvikmynda athöfnina til að sem flestir mættu upplifa og njóta með höfundunum. Stikluna er að finna á vefjum Reykjavíkurborgar og Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO. Blokkin á heimsenda kemur út í dag, þriðjudaginn 19. maí, og er það Mál og menning sem gefur út. Í umsögn dómnefndar um verðlaunahandritið segir: „Nafn og arfleifð Guðrúnar Helgadóttur var okkur ofarlega í huga þegar við lásum nýverið stóran bunka barnabókahandrita. Að þessu sinni bárust 48 handrit í samkeppnina sem er haldin árlega í hennar nafni og voru mörg hver afar vönduð. Valið var því orðið ansi strembið undir lok.Handritið sem varð fyrir valinu ber titilinn Blokkin á heimsenda og er eftir þær Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur. Sagan er grípandi með gamansömum tón. Hún segir frá fjölskyldu sem er vön nútímaþægindum en þarf að segja skilið við sitt hefðbundna líf til að komast í gegnum erfiða tíma. Fjölskyldan verður strandaglópur á eyju þar sem föðuramma barnanna ræður ríkjum. Þar er fámennt samfélag og allir eyjarskeggar hafa ákveðnu hlutverki að gegna. Aðflutta fjölskyldan lærir að sætta sig við að búa við þröngan kost. Allir þurfa að leggja sitt af mörkum og læra að taka ekki öllu sem gefnu. Það gengur á ýmsu á eyjunni. Margir eru ósáttir við sína stöðu, skemmdarverk eru unnin og nýbúarnir liggja undir grun. Aðstæður eru nokkuð framandi fyrir hinn almenna lesanda (þó að fordæmalausir tímar kynnu að hafa áhrif á það um þessar mundir) en þrátt fyrir það er samtímatónninn sterkur og auðvelt að samsama sig hugsanagangi ungmennanna í sögunni. Jafnframt víkur hún frá hefðbundnum stíl barnabókmennta á skemmtilegan hátt, til að mynda með ömmunni sem er ekki staðalmyndin af ömmum, hlý og skilningsrík, heldur ógnvænleg persóna, sem fullorðinn lesandi sér þó strax að búi yfir einhverjum ótta eða sársauka. Það má með sanni segja að andi og arfleifð Guðrúnar Helgadóttur svífi yfir Blokkinni á heimsenda. Horft er á samfélag hinna fullorðnu með augum barnsins. Þar er ekki allt eins og best verður á kosið en með samstöðu og samhygð komast sögupersónur vel frá verki og vaxa að völdum og virðingu.Það var ánægjulegt að starfa í dómnefnd og lesa vel á fimmta tug handrita sem gerðu tilkall til Barnabókaverðlauna Guðrúnar Helgadóttur. Tveir nemendur á miðstigi Háteigsskóla aðstoðuðu dómnefnd við að taka lokaákvörðun um val á besta handritinu. Dómnefnd þakkar þeim sem sendu inn handrit kærlega fyrir þátttökuna og hvetur þau til að halda áfram að skrifa.“ Reykjavík bókmenntaborg UNESCO hefur umsjón með Barnabókaverðlaunum Guðrúnar Helgadóttur. Þau verða næst veitt vorið 2021 og verður skilafrestur handrita auglýstur á vef Bókmenntaborgarinnar, bokmenntaborgin.is, og á vef Reykjavíkurborgar.
Bókmenntir Mest lesið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira