Líklegt að fyrstu 20 stig 2020 mælist í dag Atli Ísleifsson skrifar 29. maí 2020 07:06 Það verður þungbúið sunnan- og vestanlands með viðloðandi súld og rigningu. Hiti 8 til 13 stig. Á Norður- og Austurlandi verður hins vegar bjart veður og hiti 14 til 20 stig. Veðurstofan
Líklegt er að hiti muni ná 20 stigum í fyrsta skipti á landinu á þessu ári í dag. Spár Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hitinn gæti farið í 21 stig í Ásbyrgi. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag sé útlit fyrir suðlægan strekking, víða 10 til 15 metrum á sekúndu. „Það verður þungbúið sunnan- og vestanlands með viðloðandi súld og rigningu. Hiti 8 til 13 stig. Á Norður- og Austurlandi verður hins vegar bjart veður og hiti 14 til 20 stig. Það er sem sagt líklegt að fyrstu 20 stig ársins mælist í dag. Ef við leyfum okkur að spá nákvæmar, þá má skjóta á að hæsti hiti dagsins á landinu verði 21 stig á veðurstöðinni í Ásbyrgi. Á morgun gefur sunnanáttin eftir og verður yfirleitt á bilinu 5-10 m/s (gola eða kaldi). Á sunnan- og vestanverðu landinu má búast við dálitlum skúrum. Mögulega sést aðeins til sólar milli skúranna. Norðaustantil er áfram útlit fyrir þurrt og bjart veður, en hitinn nær væntanlega ekki eins hátt og í dag og gæti orðið kringum 18 stig þegar best lætur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan 5-10 m/s, dálitlir skúrir og hiti 8 til 13 stig. Bjartviðri norðaustantil á landinu með hita að 18 stigum. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Suðvestan 5-10 og skúrir, en þurrt og bjart á austanverðu landinu. Hiti 7 til 15 stig, mildast á Austurlandi. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Suðvestan 3-8, skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar skúrir, en þurrt austanlands. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Vestlæg átt, skýjað og svolítil væta, en þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast suðaustantil. Á miðvikudag og fimmtudag: Norðlæg átt með dálítilli rigningu og svölu veðri norðaustantil á landinu, en yfirleitt léttskýjað sunnan- og vestanlands og milt að deginum.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira