Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Bjarki Sigurðsson skrifar 25. september 2026 07:31 Það verður töluvert um vind og rigningu á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra í dag. Vísir/Vilhelm Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra vegna storms og mikillar rigningar. Viðvaranirnar verða í gildi í allan dag og fram á kvöld.
Á Vestfjörðum eru tvær viðvaranir í gildi, annars vegar vegna norðaustan storms og hins vegar vegna talsverðrar eða mikillar rigningar. „Norðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 30 m/s. Einnig má búast við rigningu sem breytist yfir í snjókomu á fjallvegum eftir hádegi á föstudag. Varasamt ferðaveður,“ segir á vef Veðurstofunnar. Þá er aukin hætta á flóðum og skriðuföllum sem gætu valdið tjóni og raskað samgöngum. Segir meðal annars á vef Veðurstofunnar að yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, aurskriður og jarðvegsskriður, gætu átt sér stað skyndilega og er fólk varað við því að standa undir bröttum hlíðum og beðið um að sýna sérstaka aðgát á vegum. Á morgun er búist við norðanátt og átta til fimmtán metrum á sekúndu um landið norðvestanvert á morgun með talsverðri rigningu á láglendi, en slyddu eða snjókomu til fjalla. Hægari vindur sunnan- og austantil, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti breytist lítið. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á laugardag og sunnudag: Norðan 8-15 m/s um landið norðvestanvert með rigningu á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Hægari vindur sunnan- og austantil, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 2 til 12 stig, kaldast á Vestfjörðum. Á mánudag: Norðan 5-10. Dálítil rigning um landið norðanvert. Skýjað með köflum sunnantil með skúrum síðdegis. Hiti 3 til 10 stig, mildast við suðurströndina. Á þriðjudag: Austlæg átt og rigning með köflum, en lengst af þurrt á norðanverðu landinu. Hiti víða 5 til 10 stig. Á miðvikudag og fimmtudag: Stíf austan- og norðaustanátt með rigningu, úrkomumest á austanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig.
Veður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira