Flugu til móts við óvæntar rússneskar sprengjuvélar Andri Eysteinsson skrifar 4. júlí 2020 17:00 F-35 flugvélar eru notaðar af ítalska flughernum hér á landi. Getty/Stefano Montesi
Orrustuþotur ítalska flughersins, sem sinnt hafa loftrýmisgæslu hér á landi undanfarið, flugu í fyrrinótt til móts við rússneskar sprengjuflugvélar sem höfðu flogið án tilkynningar inn í íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið, þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Flugvélarnar komu inn í loftrýmiseftirlitssvæðið án tilkynningar til flugumferðarstjórnar né voru þær með ratsjárvara í gangi. Unnið var eftir vinnureglum Atlantshafsbandalagsins og voru ítölsku orrustuþoturnar því ræstar og flugu þær til móts við þær óþekktu frá Keflavíkurflugvelli. Að lokum tókst að auðkenna vélarnar suður af Stokksnesi. Þar reyndust á ferð langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar sem voru innan loftrýmiseftirlitssvæðis Atlantshafsbandalagsins en voru þó utan íslenskrar lofthelgi. Ítalska flugsveitin, sem sinnir eftirlitinu hér á landi, er með sex F-35 orrustuþotur á landinu. Loftrýmisgæsla NATO við Ísland hefur staðið yfir frá júníbyrjun og heyrir verkefnið undir stjórnstöð bandalagsins í Uedem í Þýskalandi. Landhelgisgæsla Íslands ber ábyrgð á framkvæmdinni hér á landi í samvinnu við Isavia.
Landhelgisgæslan Ítalía Rússland Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Fleiri fréttir Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Sjá meira