Viðskipti innlent

Íslandsstofa býður útlendingum að öskra á íslenska náttúru

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Einn þeirra sjö hátalara sem nú standa úti í íslenskri náttúru.
Einn þeirra sjö hátalara sem nú standa úti í íslenskri náttúru. íslandsstofa

Sjö hátölurum hefur verið komið upp víðsvegar um landið. Næstu tvær vikurnar munu þeir varpa út öskri fólks sem vill losa um streitu í kórónuveirufaraldrinum. Hátölurunum var komið fyrir af Íslandsstofu sem segir að Íslendingar eigi þrátt fyrir öskrið ekki að þurfa að óttast að þau skemmi sumarfríið þeirra - „þar sem hljóðstyrknum er stillt í hóf.“

Hátalararnir eru staðsettir í Viðey í Reykjavík, Festarfjall við Grindavík, í nágrenni Skógarfoss, skammt utan við Djúpavog, við rætur Snæfellsjökuls, við Kálfshamarsvík og við Rauðasand á Vestfjörðum.

Fólki býðst að taka upp öskur sitt með aðstoð tölvu eða síma á vefsíðu verkefnisins og fá öskrarar að lokum myndbandsupptöku af því þegar ópið þeirra „glymur“ á Íslandi.

Uppátækið er hluti af kynningarherferð stjórnvalda sem ber heitið „Let It Out“ eða „Losaðu þig við það“ en það fellur undir markaðsverkefnið „Ísland - saman í sókn“ sem blásið var til vegna farsóttarinnar. Hátalaraútspilið er sagt sækja innblástur til kenninga sálfræðinga um streitulosandi áhrif þess að öskra af öllum lífs og sálar kröftum.

„Í könnun sem framkvæmd var á erlendum mörkuðum fyrir Inspired by Iceland í byrjun júní sögðust 40% aðspurðra finna fyrir streitueinkennum vegna Covid-19, og 37% svöruðu að ástandið hefði haft neikvæð áhrif á sálartetrið. Langvinn innivera, einsemd, endalausir fjarfundir og röskun á daglegu lífi hefur aukið streitu fólks m.a. takmarkanir á ferðalögum milli landa. Herferðinni er ætlað að draga fram kosti Íslands sem áfangastaðar,“ segir í orðsendingu Íslandsstofu um hátalarana.

Nánari upplýsingar um verkefnið og hvernig má koma öskri sínu á framfæri er að finna á vef kynningarátaksins, sem má nálgast með því að smella hér. Þar má jafnframt heyra öskurdæmi.


Tengdar fréttir

Auglýsingastofan umdeilda ætlar að herja á tvær túristatýpur

Auglýsingaherferð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi og íslensku auglýsingastofunnar Peel í tengslum við markaðsverkefnið „Ísland - Saman í sókn“ mun herja á tvær týpur af ferðamönnum sem forsvarsmenn M&C Saatchi telja líklegri en aðrir til þess að ferðast núna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×