Lífleg veiði við Hraun í Ölfusi Karl Lúðvíksson skrifar 19. júlí 2020 14:59 Vlageir Ólafsson með fallegan birting af Hrauni. Mynd: www.veida.is
Hraun í Ölfusi er einn af þessum veiðistöðum sem of fáir heimsækja og sérstaklega á þessum tíma þegar veiðin getur verið mjög góð. Það eru allar tegundir laxfiska sem hægt er að setja í við Hraun en mest veiðist þó af sjóbirting og laxi. Þeir sem þekkja á svæðið fara varla fisklausir þaðan nema á slæmum degi en það er það sama þarna og annars staðar, að þekkja svæðið skiptir máli. Mikilvægast er að koma á fjöru og veiða í aðfallinu en þá er fiskurinn að koma inn. Í eina tíð var þetta mest veitt á beitu og spún en bestu veiðina gerir maður á flugu. Það er best að veiða þarna á annað hvort flotlínu með sökkenda eða intermediate línu. Notaðu stuttan taum og þverkastaðu til að gefa flugunni tíma til að sökkva. Strippaðu stundum en ekki í hverju kasti. Síðan skaltu ekki vaða út því fisurinn gengur oft inn mjög nálægt landi. Flugan sem gefur best þarna er Bizmo en flugur eins og Snældur og Sunray gefa líka vel. Veiðileyfi á Hraun finnur þú á www.veida.is
Stangveiði Mest lesið Minnkandi vinsældir Alviðru í Soginu Veiði Veiðileyfi í verðlaun í Facebookleik Veiðivísis Veiði 85 sm urriði á land í Ytri Rangá Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Framlengt í Miðfirðinum og Norðurá Veiði Áttatíu laxar að landi í Eystri-Rangá Veiði Virkilega góð byrjun í Eystri Rangá Veiði Vesturröst kynnir nýja línu í veiðivörum frá Airflo Veiði Góður kippur í veiðina í Ytri Rangá Veiði Kvennahollin gera það gott við Langá Veiði