Úrkomulítið fram að helgi Sylvía Hall skrifar 27. júlí 2020 08:36 Það stefnir í úrkomulitla viku en lægð nálgast landið um verslunarmannahelgina. Vísir/Vilhelm
Það stefnir í prýðisgóða viku á landinu með hægum vindi víðast hvar. Hitastigið fyrir norðan fer stígandi en einhver þoka gæti lekið inn að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Yfir það heila ætti að vera úrkomulítið fram að helgi. Á fimmtudagskvöld fer að hvessa almennilega þegar lægð nálgast landið úr suðri með blauta austanátt sem mun „heiðra verslunarmenn með nærveru sinni“ um helgina. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að norðlægri átt sé spáð í dag, 5 til 10 metrar á sekúndu en hvassara austanlands fram eftir degi. Skýjað með köflum og þurrt að kalla norðvestantil en súld eða rigning með köflum norðaustantil. Hiti á bilinu 7 til 12 stig nyrðra en léttskýjað sunnanlands og hiti 12 til 18 stig. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Hæg breytileg átt, en norðvestan 3-8 við NA- og SV-ströndina. Bjart og þurrt sunnan heiða, annars skýjað með köflum og dálítil væta. Hiti 8 til 15, svalast við N-ströndina, en allt að 19 stig á S-landi. Á miðvikudag: Hægviðri og skýjað en úrkomulítið. Hiti 8 til 14 stig. Á fimmtudag: Austan 3-8 m/s, en hvassari við S-ströndina um kvöldið. Skýjað með köflum en þurrt að kalla og hiti 9 til 16 stig. Á föstudag: Suðaustlæg átt 5-15 m/s, hvassast við S-ströndina. Rigning, einkum SA-lands, og áfram svipaður hiti. Á laugardag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu, en bjartviðri norðan heiða. Hiti 8 til 18 stig, svalast á A-landi. Á sunnudag: Líkur á fremur hægri breytilegri átt með vætu og mildu veðri, en sunnanátt og svalara A-lands.
Veður Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira