Það er alls ekki algilt að kynlíf milli einstaklinga endi með fullnægingu enda ætti fullnægingin sjálf kannski ekki að vera meginmarkmið kynlífsins, heldur nándin og nautnin við hverja snertingu.
Þegar kemur að því að fá fullnægingu virðast karlmenn líffræðilega eiga auðveldara með það að fá fullnægingu en konur. Það er því talið nokkuð algengara að konur geri sér upp fullnægingu í kynlífi af ýmsum ástæðum en rannsóknir hafa einnig sýnt að karlmenn geri það.
Það mætti ætla að opnari umræða um kynlíf og aukið aðgengi að upplýsingum um vandamál tengd kynlífi hafi leitt til þess að færri finni sig í þessari stöðu í dag heldur en áður fyrr. Það má eiginlega segja að opin umræða um kynlíf sé ekki lengur tabú.
Út frá þessum vangaveltum sprettur spurning þessarar viku.
Hefur þú gert þér upp fullnægingu?
Könnunin er að þessu sinni kynjaskipt og er fólk beðið um að svara eftir því.
KONUR SVARA HÉR:
KARLAR SVARA HÉR: