Alldjúp lægð nálgast nú landið úr suðri. Henni fylgir stíf austan- og norðaustanátt víða um land, en hvassviðri eða stormur við suðausturströndina fram eftir degi. Það rignir um allt land og býst Veðurstofan við úrhelli á Austfjörðum og Suðausturlandi.
Af þessum sökum eru þrjár veðurviðvaranir í gildi. Appelsínugul stormviðvörun tekur gildi núna klukkan 7 á Suðausturlandi og stendur til hádegis. Þar er varað við snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s, t.d. undir Öræfajökli og við Reynisfjall. Þetta getur skapað hættuleg akstursskilyrði, einkum fyrir ökutæki með aftanívagna.
Jafnframt er varað við hvassviðri á Suðurlandi til klukkan 18 í kvöld. Hvassast verður undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli, þar verður vindhraði um 15 til 20 m/s og geta vindhviður náð 30 m/s. Þar geta jafnframt skapast hættuleg veðurskilyrði fyrir fólk á ferðinni.
Á Austfjörðum er svo varað við talsverðri eða mikilli rigningu fram á kvöld. Búast megi við auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum, sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur það valdið tjóni og raskað samgöngum. Þessu mun fylgja aukið álag á fráveitukerfi og er fólk því beðið að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.
Veðrið verður þó skárra á morgun að sögn Veðurstofunnar, hægari vindur og lítilsháttar væta nema á suðaustantil landinu. Hiti yfirleitt 10 til 17 stig, hlýjast norðan- og vestanlands.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Suðaustan 8-13 m/s um landið A-vert og norðaustan 8-13 á Vestfjörðum, annars hægari vindur. Bjart með köflum NA-til, talsverð rigning á SA-landi og skúrir í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast N- og V-lands.
Á sunnudag:
Breytileg átt 5-13 og rigning eða skúrir. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á NA-landi.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna):
Norðlæg eða breytileg átt og skúrir, en rigning A-lands. Hiti 8 til 15 stig, mildast sunnan heiða.
Á þriðjudag:
Austlæg átt og skúrir, en þurrt á N-verðu landinu. Hiti 7 til 14 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Suðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið NA-lands. Heldur hlýnandi.