Íslenska fluguveiðisýningin safnaði tæplega 900.000 kr. árið 2019 og mun þeim fjármunum verða varið i þágu meginmarkmiðs stofnunarinnar, sem er að standa vörð um íslenska náttúru og dýralíf með áherslu á vernd og uppbyggingu villtra ferskvatnsstofna. Stefnt er að því að næsta sýning verði haldin í mars 2020.
Stjórn Íslensku fluguveiðisýningarinnar hefur ákveðið að útdeila 600.000 kr. af þeim fjármunum sem söfnuðust á sýningunni árið 2019 til stofnana og sjóða sem hafa sömu eða sambærileg markmið og stofnunin. Eftirtaldir aðilar hljóta styrk vegna ársins 2019, en allir þessir aðilar hafa verið áberandi í umræðunni um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi:
Icelandic Wildlife Fund – 200.000 kr.
Icelandic Wildlife Fund hefur verið mjög áberandi í málflutningi sínum um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi á árinu. Þar ber helst að nefna mikil og áberandi miðlun upplýsinga til almennings og gerð kynningarefnis um skaðsemi sjókvíaeldis.
NASF á Íslandi – 200.000 kr.
NASF er sjóður sem var stofnaður í tengslum við baráttu Orra Vigfússonar fyrir Atlantshafslaxinum. Íslandsdeild NASF hefur verið áberandi á árinu 2019 í umræðum um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi.
Laxfiskar ehf. – 200.000 kr.
Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum á langan feril að baki í fiskirannsóknum og þar af hefur hann á vegum rannsóknafyrirtækis síns Laxfiska í tæpa tvo áratugi stundað framsæknar rannsóknir á lífsháttum og umhverfi íslenskra ferskvatnsfiska, bæði í ferskvatni og sjó. Þar má sérstaklega nefna miklar rannsóknir Jóhannesar á lífsháttum Þingvallaurriðans sem skilað hafa mikilvægum grunnviðmiðum sem nýting og verndun Þingvallaurriðans tekur mið af. Þá hefur Jóhannes verið áberandi í umræðunni um skaðsemi sjókvíaeldis á villtum laxi.